Færsluflokkur: Bloggar
20.11.2008 | 11:56
Jafnréttisviðurkenningar Stígamóta verða afhentar í Iðnó á morgun föstudag kl. 13-16
Nú ætla ég að brjóta eigin reglu um aðskilnað einkalífs og vinnu og birta eftirfarandi:
Mikilvægt er að benda á þá miklu vinnu sem unnin hefur verið til þess að koma á raunverulegu jafnrétti kynjanna á Íslandi. Fyrstu jafnréttisviðurkenningar Stígamóta verða veittar við hátíðlega athöfn í Iðnó á morgun föstudag 21. nóv í tengslum við Evrópumálstofu um kynbundið ofbeldi. Þannig verður sýnt fram á hversu margbreytileg verkefnin eru. Valkyrjurnar sem toga okkur í rétta átt eru oft ósýnilegar og það sama má segja um vinnuna þeirra. Þær verðskulda styttur af sér og málverk sem þjóðin ætti að veita þeim, en þakkir og viðurkenningar veita Stígamót með gleði. Það væri gaman að sjá sem flesta í Iðnó á morgun föstudag kl. 13-16 til þess að hylla okkar konur og til þess að þiggja andlega næringu frá systrum okkar í Evrópu og hlusta á undurfagran söng Önnu Sigríðar Helgadóttur. Við minnum líka á fögnuðinn utan við Norska sendiráðið, Fjólugötu á undan kl. 12.10 þar sem frænkur okkar í Noregi verða hylltar fyrir að hafa komið í gegn lögum um bann við kaupum á vændi. Danskar frænkur okkar ætla að vera utan við norska sendiráðið í Köben með dagskrá undir yfirskriftinni Ja, vi elsker dette landet .Það er kærkomið að hafa eitthvað að fagna á þessu landi, nýtum tækifærin!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2008 | 00:16
Skóli lífsins
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2008 | 11:58
Hvaða íþróttagrein ætti Tommsinn minn að velja sér?
Hann var að velta því fyrir sér hvaða íþróttagrein hann ætlaði að leggja fyrir sig. Orðinn sex ára og komið að því að troða honum í einhverja skipulagða dagskrá. Skil það ekki endilega en það er annað mál. Það var ýmislegt nefnt hér við matarborðið. Skíði eða golf í anda afa, eða fótbolti, nú eða fimleikar? Ég veit sagði drengurinn minn! Ólympíuleikar! Elska þetta barn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.11.2008 | 11:45
Þetta er ekki barnafangelsi............
Katla er undurflink að leika sér. Hún hefur þvílíkt ímyndunarafl að það er dásamlegt að fylgjast með henni. En mér brá í brún þegar ég sá nýjasta leikinn hennar - að leika sér í hundabúrinu hennar Freyju. Úff!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.11.2008 | 15:46
Og það er slátur í pottinum.........
Hversdagslífið eins og ég man það fyrir þrjátíu árum er bara fínt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.11.2008 | 09:36
Heima að vinna............
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2008 | 08:56
Ég held að ég hafi verið að fá hugmynd..........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.11.2008 | 12:33
Öfgana á milli
Heima á Íslandi virðist vera yfirvofandi alvarlegri fjármálakreppa en ég ræð við að skilja. Sjálf er ég akkúrat núna í heimsókn hjá einni af ríkustu konum Bandaríkjanna. Þessi kona hefur fjármagnað mansalssjóð Equality now! og bauð til sín stjórninni og okkur tíu fulltrúum samtakanna sem hlotið hafa viðurkenningar sjóðsins. Hér eru konur frá Indlandi, Perú, Zambíu, Lettlandi, Brasilíu, Kenýa og hún Guðrún litla frá Kóngsbakka. Svo eru hér þekktir rithöfundar og kvikmyndagerðarkona ásamt Gloríu Steinem. Gloría kom á eftir okkur vegna þess að hún kom fram þennan dag í Ophera þættinum vegna kosninganna. Hálfóraunverulegt allt saman.
Við höldum til heima hjá Bonnie og Jamie sambýliskonu hennar á sveitasetri sem ég á engin orð til þess að lýsa. Þær stöllurnar reka Spa sem okkur var boðið í og ég þarf stöðugt að passa að missa ekki hökuna niður í bringu. Einhverra hluta vegna get ég ekki sett inn myndir.
Hér var haldin sérstök sýning á kvikmyndinni Trade sem Equality now! tók þátt í að framleiða. Um 300 -400 konur mættu á sýninguna og á eftir voru spurningar og svör sem Gloria stjórnaði. Í pallborði sátum við þrjár konur og vorum spurðar spjörunum úr utan úr sal. Mín bara róleg og gekk held ég ágætlega.
Allar héldum við erindi um ástandið í eigin löndum og það var m.a. skrifuð ályktun um athyglisverða leið íslenskra stjórnvalda gegn klámiðnaði. Leiðina sem felst í að loka búðunum með konur, nefnilega klámstöðunum. Skorað var á ísl. stjórnvöld að klára verkið og afnema undanþáguákvæðið.
Ég kom til NY á kosningakvöldið og hitti svo stöllur mínar snemma daginn eftir. Þær voru almennt æpandi af ánægju með úrslitin og ósofnar eftir kosningavökur. Allar ræddu þær um að sigurinn væri mun stærri en sem nemur þessum kosningum. Þetta væri sigur grasrótarinnar og mannréttindahreyfinga. Taina sem er svört sagðist vel muna eftir því þegar hundum var sigað á svart fólk í hennar heimaríki og sagðist ekki hafa trúað því að hún myndi upplifa slíka uppreisn æru. Það er augljóslega mikilvægara hvaða kynþætti kona er af en að vera kona.
Legg af stað heim í dag í kæfuna og grjónagrautinn og hlakka bara til að hitta fólkið mitt og komast á landið mitt sem er svoddan ógöngum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.11.2008 | 13:27
Stolt af Ástu vinkonu minni í Íslandi í dag
Við Ásta vorum saman í bekk og sátum saman frá því við vorum 11 ára og þar til við urðum stúdentar. Við höfum velkst í gegnum lífið saman og á milli okkar er leyniþráður. Við höfum alltaf haldið sambandi og það er í okkur innbyggð klukka sem hringir þegar eitthvað er að hjá hinni og þegar svo önnur hringir, segir hin gjarnan, skrýtið, ég var að fara að hringja.
Ásta hefur háð hetjulega baráttu við djöfullegt þunglyndi og haft betur. Hún er nú orðin svo sterk að hún er farin að nýta reynslu sína til þess að hvetja aðra í svipuðum sporum og stappa í þau stálinu. Í gær kom hún fram í Íslandi í dag og stóð sig eins og alltaf eins og hetja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)