Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Ný vídd í tilveruna

Veit ekki hver materialismi minn endar.  Virðist vera að færa mig rosalega upp á skaftið, því nú er ég búin að fá óperur og dásamlega klassíska tónlist inn á fína símann minn, sem ég er enn að læra á.  Hjólaði á nýja fína hjólinu mínu í vinnuna í morgun með dúndrandi óperur í eyrunum, hvílíkur unaður.  Í vinnunni sagði nýi fíni tölvukarlinn okkar mér að ég gæti líka skoðað kvikmyndir í græjunni í flugi og svona.  Það verður næsta atriði.......  finnst þetta bara skemmtilegt, er að velta fyrir mér hvað ég eigi að kaupa mér næst?


Íþróttafólk

Hvílík vorstemmning.  Hjóluðum til Begga og Rósu í morgun í morgunkaffi og hittum þar Sóleyju, Tomma og Önnu sem höfðu hjólað vestan úr bæ.  Fórum svo öll hjólandi vestur í bæ, við Tommi, Rósa og Beggi, Anna og Tommsinn. Góður dagur.


Stóra ab-mjólkurmálið

Dagatalið segir að það sé komið sumar.  Dálítið fyndið en á Íslandi fögnum  við því og gleðjumst.  Í gærkvöldi að kvöldi sumardagsins ákváðum við að njóta þess að eiga loksins frídag saman og ég eldaði dýrindis indverskan kjúklingarétt.  Lagði fallega á  borð fyrir  fimm og Margrét systir, Snorri og Krissan mín skyldu njóta matarins með  okkur  Tomma.  Margrét kom með eðalrauðvín og ég bjó til salat og steikti pomadam brauð.  Allt var klárt - bara lokatötsið eftir.  Ég slökkti undir  matnum, opnaði ab-mjólk og hellti hálfum lítra yfir  matinn, bætti við hnetum, hrærði varlega og klippti kóreander yfir. 

Fannst lyktin ansi skrýtin...... í stað þess að njóta  kryddlyktarinnar fann ég bara angandi jarðaberjalykt.  Fannst þetta óskiljanlegt og smakkaði; maturinn  sem í fóru tveir heilir  hvítlaukar, sex chili, hálfur staukur  af karrýi, heilt búnt af kóreander og ýmsu öðru góðgæti var eins og jarðaberjasúpa.  Þetta stóðst  ekki og ég kíkti á  umbúðirnar  á ab- mjólkinni.  Það var hefðbundin ab-mjólkurferna það fór  ekki á milli mála.  Rak puttann í mjólkina og sleikti.  Í ab-mjólkurfernunni var jarðaberjajógúrt. 

Þá kemur  að neytendamáli.  Hver er ábyrgð Mjólkurbús Flóamanna?  Skulda þau mér 1 lítra af ab-mjólk eða eldaða  máltíð fyrir fimm?  Mér finnst svarið augljóst..................

Síðar sama dag:  Mjólkurbú Flóamanna kann neytendamál og bætti skaðann að sjálfsögðu..........nú skulda ég Snolla mínum annað matarboð.


Evrópuráðsfundur um ofbeldismál

IMG_1312IMG_1336IMG_1340Ég er búin að sitja í tvo daga með fólki, aðallega konum frá 37 Evrópulöndum til þess að ræða um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi.  Ætlaði að mæta  á fundinn til þess að  geta  í leiðinni hitt vinkonur mínar í  WAVE og plana með þeim framtíðina.  En það kom mér skemmtilega á  óvart hvað  fundurinn var nýtilegur.  Mikið af upplýsingum og yfirsýn yfir  hvað er að gerast í Evrópu og heilmikið af áhugaverðu lesefni.  Má nefna merkilegt samstarf við fjölmiðla á Spáni, mælingar á  ofbeldi í Danmörku, tæknileg áhöld í Noregi, lagasetningar, Evrópusáttmála um kynbundið ofbeldi sbr. sáttmálann um mansal og ýmislegt fleira.  Sumt storkaði heimsmynd minni, elska það þegar ég upplifi slíkt, þarf að hugsa meira um það.  Í morgun var ég svo inspireruð að mér datt í hug sú villta  hugmynd að taka mér frí frá hefðbundum störfum í vikur , jafnvel mánuð og leggjast í lestur og oppdateringu.  Endurnýja fræðsluefni og buna úr mér nýjum fróðleik og hugsunum. 

Eftir fundinn fóru allar  heim nema ég sem á svo langt  að  fara.  Gekk um garða hér í Strassborg og dáðist að storkunum sem hér  hefur  verið gert kleift að  fjölga sér svo þeir  hafa einmitt núna hreiður  um allt.  Hér  eru trén laufguð,  ávaxtatrén í blóma, grasið orðið grænt, blómakerin skreytt og sumarlykt í loftinu. Ekki slæmur dagur.   Á langan  ferðadag fyrir höndum, er búin að velja  út þær  skýrslur  sem mér  líst best á til þess að  lesa á leiðinni heim á morgun. 


Snudda og putti..........

IMG_1294IMG_1295

Þau eru bara að hafa það gott


Lína langsokkur og fleiri góðar konur

IMG_2503IMG_2621Lengi vel hélt ég að Lína langsokkur væri sterkasta kona í heimi.  Svei mér þá ef dætur mínar eru ekki sterkustu og heilbrigðustu konur sem ég hef komist í tæri við.   Belgi brjóstið þegar mér detta þær í  hug.  Say no more!

Það er þetta með dótamenninguna í fjölskyldunni

Flottasta gjöf sem ég hef á æfinni fengið og verið glöðust með var  reiðhjólið sem foreldrar mínir keyptu handa mér á brunaútsölu og gáfu mér  í jólagjöf þegar  ég var tíu eða ellefu ára.  Aldrei hef ég orðið jafn yfir mig hissa og glöð.  Slíkar gjafir voru almennt ekki keyptar af mínu fólki.  Ég fór út að hjóla á jóladag í glerahálku og var að rifna úr ánægju.  Það var bara einn galli á þessu hjóli og hann var sá að það var svo stíft að það var eiginlega ekki hægt að hjóla á því. En það var reiðhjól, fallega grænblátt og ég átti það.

Í dag fórum við fjölskyldan á Ljósvelli að horfa á Tommsann minn sem er  búinn að læra að hjóla sjálfur. Hann kann að hjóla, en ekki bremsa eða stoppa svo hann skutlar  sér í götuna af hjólinu.  Fallegri eða ánægðari hjóladreng hef ég aldrei séð. 

Ánægja barnsins var slík að við hin smituðumst og við Tommi og Sóley brugðum okkur í búð og keyptum okkur reiðhjól.  Þetta er annað hjólið sem ég eignast á æfinni - valdi það sjálf án þess að kíkja  á verðmiða  og það er eins og sérhannað fyrir  mig.  Nú á eftir  að setja  á það græjur svo ég fæ það ekki fyrr en á  þriðjudag.  Rosalega hlakka ég til og rosalega er ég ánægð með mig að brjóta dótleysishefðina  og kaupa mér  dót!


Afríkublómið mitt

IMG_2530IMG_1287Þetta er einmitt dagurinn til þess að skrifa um afríkublómið mitt sem er á  leið upp úr þakinu.  Við hliðina er mynd af því frá því í maí í fyrra.  Spurning hvort það muni blómstra?  Rósa mágkona mín keypti fræ í S-Afríku og segir að þetta sé fallegasta blóm í heimi.  Í dag skipti ég á blómunum mínum.  Það er komið vor og mér líður  alltaf jafn vel þegar ég er búin með þetta uppáhalds vorverk.

Barnið mitt í stuði

 Stundum velti ég fyrir mér uppeldi dætra minna. Held, þó ég segi það ekki oft við þær,1974 Sóley á Þingvöllum að þær séu mitt IMG_0162lukkaðasta lífsverk.  Elsta dóttir mín fór á kostum í gær.  Hún var nærri köfnuð úr hlátri í gærmorgun þegar hún las fyrir mig eftirfarandi setningu  "Að skylda konur til að hylja brjóst sín í sundi lýsir lostafullum kenndum þeirra sem reglurnar setja."   Í fjölskyldunni eigum við nokkrar klassískar sögur um lukkuð aprílgöbb.  Þetta fer í safnið.  Sjá annars:   http://soley.blog.is/blog/soley/


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband