Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Ævintýri fröken Önnu og frú Guðrúnar

IMG_3092Ég ,froken Anna og hún amma mín ,frú Guðrún ætlum okkur í langferð til Köben í dag og í jólatívólíið þar.Svo stefnum við á búð við hliðina á tívólíinu og þar er hægt að búa til bangsa og það er hægt að blása í þá líf og fallegar hugsanir.Ég held að þetta verði það skemtilegasta sem ég hef gert á æfi minni ,hingað til.

 

                                                             Anna S. Sóleyjard.               


Feministafréttir

http://feministafrettir.blog.is  Á Álfhóli erum við að rifna úr stolti í dag yfir stúdíóinu á Eggertsgötu hjá  yngstu dóttur okkar og tengdasyni.  Þar hefur verið sett á laggirnar feministafréttastofa - auðvitað!! Það er einkenni brillianthugmynda hversu einfaldar og augljósar þær eru.  Fylgist með - það er haft fyrir satt að þar sé að fara í loftið þátturinn Krissugull - til mótvægis við - já  getiði hvað?

Og þar  sem myndavélarleysi hrjáir Álfhólsmiðilinn hefur hann verið hálf máttlaus undanfarið. Því hefur ekki verið sagt frá því að fréttstofueigandinn varð 25 ára í gær.  Ekki seinna  vænna að setja á laggirnar fréttstofu!  Til hamingju með afmælið Krissan okkar!

1982 Kristín Tómasdóttir


Klassískur sunnudagur á Hóli

IMG_3087IMG_3088IMG_3089Á þessum myndum má  sjá afann uppfylla ritual barnabarnanna  sinna á sunnudagsmorgnum.  Þau virðast vera skilyrt, komast ekki í gang fyrr en afi er búinn að elda handa þeim makkarónugraut.  Á meðan pakkaði amma þeim inn í teppi  svo þau gætu notið þess að horfa á barnatímann.  Á leiðinni heim til sín sagði Tommsinn ömmu sinni í fullri einlægni að það væru til börn sem ættu enga ömmu og afa.   Í alvöru amma sagði hann til þess að leggja  áherslu á orð sín.

Myndir óskast

IMG_2108Held að ég verði að fara að taka mér frí frá þessum miðli ef ég fer ekki að fá aðgang að myndavél aftur.  Punta þessa færslu með henni Birtu minni sem var að leggja sig. 

Synd því við vorum á Akureyri um helgina og þar var svo undurfallegt og huggulegt.  Þar voru hins vegar  bæði Dagný og Þóra  úr Dalsættinni mundandi myndavélar. Ég sting upp að þær sendi mér sýnishorn og ég mun birta þau með gleði. 


Úr hversdagslífinu

IMG_3075IMG_3086IMG_3067Nú fer að styttast í næstu fótboltakeppni á milli Tommís og Biggís.  Framleiðendur Biggís liðsins fundu smátuðru í dótakassanum á Álfhóli og gátu ekki stillt sig um  að taka smáæfingu. Ég held að þau séu að taka þetta ansi alvarlega. Og Steinunn sem er að fara í aðgerð á hné í næstu viku.  Svo slæddust með myndir af afastelpum.  Önnur að læra heima, hin að hjálpa afa sínum að taka til.

Ferðaplön

IMG_0929Eins og áður hefur verið skrifað um í þessari einkennilegu dagbók, þá erum við hjónin á leið til  Asíu.  Einhverra  hluta vegna féllust mér hendur yfir þessum framandi og yfirþyrmandi heimshluta og ég vissi ekki hvernig við ættum að nýta þetta dýrmæta tækifæri.   Ég get meira að segja viðurkennt að mig langaði hálfpartinn til þess að hætta við, sá bara fyrir  mér rottur, niðurgang, malaríu og ræningja.  Einkennilegt að hafa þurft að fara í gegnum þann fasa - ég sem hef þá staðföstu trú að ekkert geti komið fyrir mig eða mína.  Við erum búin að fara í sprautur, senda út vegabréf til þess að fá vísa, erum komin með farmiðana í hendurnar svo þetta verður æ raunverulegra og nú er tilhlökkunin orðin kvíðanum yfirsterkari.

  Náði mér í Lonely planet bækur  um  Nepal og Indland og hef sökkt mér í þær.  Ég held að við séum komin með grófa ferðaáætlun sem síðan þarf að fylla upp í.  Margrét Steinars vinkona mín er nýkomin heim frá Indlandi - þær urðu reyndar allar veikar í hennar  hópi og tvær úr hópnum þurftu á  sjúkrahús, en hún lifði þetta af og þótti ævintýri. 

En ég er svo heppin að Sóley systir mín og besta vinkona er stödd á Indlandi núna.  Hún er í mikilli ævintýraferð með frumlegri ferðaskrifstofu.  Hún er búin að fara í þriggja daga úlfaldasafari og gista  í kofa sem  var  gerður úr kúamykju, fara í dásamlegan þjóðgarð, búa hjá  heimafólki, heimsækja skrítna þjóðflokka og ótal, ótal margt fleira.  Hún er nógu lík mér til þess að hafa setið í bílnum á meðan hópurinn  fór í rottuhofið  og ég get ekki beðið eftir að ferðinni ljúki svo ég geti fengið díteils.  Ég þigg ennþá góð ráð, ætla að undirbúa mig eins vel og ég mögulega get.


Ef það væri nú svo einfalt!

IMG_3064


Lítil altalandi stúlka

IMG_3061 (Runa v1)IMG_3065IMG_3066Þessi litla stúlka var að æfa nýja frasa í gær; "Gjörrrðu svo vel, takk fyrrrirrr, augnablik"  Held að hún gæti tekið að sér símavörslu hjá ýmsum fyrirtækjum og engan myndi gruna að hún væri bara eins og hálfs.

Skipulagning á Hólnum

IMG_3058IMG_3059IMG_3060Á þessum myndum eru systkini Hödda og hluti af krökkunum hans og tengdadóttir að skipuleggja á Hólnum.  Gott fólk, gott samkomulag, góð stund.

Til hamingju Biggís!

Spilandi þjálfari Biggís eignaðist lítinn dreng fyrir klukkutíma síðan.  Vitum ekki meira, en óskum þeim Snjólaugu, Guðlaugi og Stefáni Steinari innilega til  hamingju!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband