11.2.2007 | 09:38
Fjölskyldulíf á Hóli
Mamma er á Kanarí með vinkonu sinni, frábært. Pabbi treystir sér ekki með og í gærmorgun hringdi ég og bauð honum í mat. Takk, svaraði pabbi, verða gestir? Ég sagði honum sem var að það væri bara morgun, venjulega gerðist mikið á einum laugardegi á mínu heimili. Ég fór í vinnuna og held að ég hafi m.a. skrifað 6 milljón króna bréf og Tommi tók út lifandis ósköp af lambakjöti. Datt í hug að það væri upplagt að frysta eitthvað í nýja ískápnum - fyrirhyggja sem við höfum ekki sýnt í um þrjátíu ár. Svo fór ég að undirbúa matinn og lagði á borð fyrir fjóra. Ljóst var að minnsta grjónið í fjölskyldunni ætlaði að vera hjá ömmu og afa um kvöldið. Það streymdi hlýja um mig þegar ég tók til hennar disk og smekk og glas og stólinn sem Pétur frændi fékk fyrir rúmum 20 árum og er enn í notkun fyrir börnin í fjölskyldunni.
Þá hringdi Hrossið mitt hún Krissa Hryssa og spurði hvað við værum að gera. Komiði í kjötsúpu sagði ég, glöð að fá þau. Garðar var kosningastjóri Röskvu og þau unnu stúdentaráðskosningarnar. Hafði ekki séð hann síðan og hann kom enn ekki upp orði vegna álagsins við að fagna kosningunum tveimur dögum fyrr. Ég bætti tveimur diskum við á borðið og hélt áfram að elda. Þá kom Tommi innan úr herbergi með stækkunarplötuna á borðstofuborðið og bætti við þremur diskum. Aart var að læra og Sóley var á leiðinni með Hjartagullið mitt og Tommsann minn. Þegar þetta er skrifað er kominn sunnudagsmorgun og Katlan mín er enn sofandi inni í rúmi. Afi hennar kemst ekki fram til mín í kaffi, því Kötlu finnst best að halda í putta þegar hún sefur, svo þá bara liggur hann þar til hún vaknar. Hlakka til þegar það fer að heyrast í henni, þá ætla ég inn að knúsa þau.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.2.2007 | 22:34
Vinátta í heila kynslóð
Um helgina var gönguhópurinn Lipurtá í Skógarkoti í Þvrárhlíð. Hópurinn samanstendur af gömlum skólasystkinum mínum úr líffræðinni. Við kynntumst árið 1975 þegar við byrjuðum nám í líffræði, þó sum hafi þekkst enn lengur eða síðan í Menntaskólanum á Akureyri. Það er svo einkennilegt með samferðafólk manns og samnemendur að það hefur mismikil áhrif á mann. Ég hef verið í skólabekkjum sem ég hef næstum því gleymt og man t.d. aðeins örfá nöfn samnemanda minna úr félagsráðgjöf í Noregi. Sumir hópar rista dýpra og má t.d. nefna 12 ára bekkinn minn sem var ótrúlega sterkur hópur sem hefur nokkrum sinnum komið saman í gegnum árin. Í líffræðinni var eins og við værum lostin einhvers konar töfrum og námsárin voru eitt samfellt ævintýri. Gamall prófessor hefur sagt mér að árgangurinn minn hafi verið einstakur og ég held að hann hafi rétt fyrir sér. Við fórum í nokkrar ógleymanlegar námsferðir um landið. Í hópnum ríkti neistandi náttúrufræðiáhugi og úr varð magnaður vinahópur. Áhuginn var ekki bara fyrir náminu, úr árgangnum urðu líka til mörg pör sem sum hver hafa haldið saman fram á þennan dag. Í vinahópnum sem hittist um helgina eru allir líffræðingar nema Tommi og Svana, en þau voru búin að krækja í okkur Júlla Bigga áður en námið hófst og hafa tekið sér gott pláss í hópnum. Eftir að við vorum öll búin að eignast börn og koma þeim upp og farin að eiga tíma fyrir okkur sjálf, fór hópurinn að þéttast aftur og við fórum að taka meiri tíma til samveru og ferðalaga. Um helgina lögðum við línurnar fyrir sumarferðina. Við ætlum að skoða Suðurfirðina á Vestfjörðunum, Látrabjarg, Rauðasand, Örlygshöfn o.fl.
Ég finn það þegar ég kem heim úr svona ferð, hversu nærandi það er að eiga svona góða vini og áhugamál sem eru algjörlegaóskyld vinnunni minni sem ég annars er svo upptekin af.
Bloggar | Breytt 11.2.2007 kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.2.2007 | 20:03
Dæturnar þenja vængina
Á Hólnum eru húsráðendur sérlega stolltir þessa dagana yfir dætrunum þremur sem reyndar eru flognar úr hreiðrinu. Þær þenja nú vængina svo fallega að foreldrana hefði ekki órað fyrir því í sínum villtustu draumum. Þær Sóley og Kristín fara á kostum á heimasíðum sínum í feminískum pælingum, sjá tengla til vinstri á síðunni. Tók eftir því í sjónvarpinu í gærkvöldi að Þóra sem ég hef alltaf haldið að væri ljósrit af meðaltali af föðurfjölskyldunni sinni var eins og ljósrit af Kristínu systur. Hef aldrei tekið eftir því fyrr að hún líktist mínu fólki í útliti þó hún hefði húmor móður sinnar. Get alveg lifað með það. Hér koma myndir af þeim í aldursröð. Hvern hefði órað fyrir því að þessir sakleysingjar yrðu einhvern tíma svona sterkar og flottar konur?
Bloggar | Breytt 11.2.2007 kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.1.2007 | 15:06
Mánudagar eru Kötludagar á Álfhóli
Það er notalegt að hafa litla snuddustelpu sofandi í afa og ömmurúmi. Hún er búin að vera svo kelin í dag. Við ömmgurnar vorum sammála um að forgangsmál dagsins væri að barnið fengi að kúra og kela og halda í putta eins mikið og hana lysti. Og það hefur hún einmitt gert. Svo lásum við dýrabókina. Í dag hef ég jarmað og mjálmað og urrað og hneggjað af mikilli innlifun og svo höfum við Katla sungið og dansað við hið sívinsæla atti katti nóa lag. Get bara ekki hugsað mér betri skemmtun. Svo læt ég fljóta hér með að ég á fleiri barnabörn sem kíktu á ömmuna sína í gær og voru yndisleg eins og alltaf.
En Félagsheimilið Álfhóll er lifandi að vanda og nú er Biggi "fjandi" mættur til þess að kynnast barnabarni nr. 12 Ástrósu Söru Sigurveigar og Guðmundardóttur og okkur til mikillar ánægju ætla þau Steinunn að vera hjá okkur þessa viku.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.1.2007 | 11:22
Loksins helgi eftir töff vinnu
Það er ekki að spyrja að misheppnuðu uppeldi dætra minna. Ég hef lengi barist fyrir því að eiga forgang að bara mínum stað í rúminu mínu. Það hefur ekki tekist og loksins ætlaði ég að fara að gera út fjölmiðil þegar brotist var inn í ritstjórnina af sömu forhertu stelpum. Var að koma frá Austurlandi þar sem ég hélt fimm fundi á innan við sólarhring og messaði yfir samtals 4-500 manns og endaði með að skála fyrir stofnun Stígamóta á Austurlandi. Strax á fyrsta degi virðast öll viðtöl upppöntuð og færri komast að en vilja.
Á Álfhóli dvelur nú Steinunn "systir mín" og svilkona. Við fögnuðum í gærkvöldi fæðingu dótturdóttur hennar númer 6 Sigurveigardóttur. Ófriðurinn hefst svo á mánudag þegar Birgir mágur minn eða "Biggi fjandi" eins og ein lítil frænka hans kallaði hann fyrir þrjátíu árum, kemur suður........ góður ófriður það. Hér er svo mynd af litlu fallegu stúlkunni þeirra
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.1.2007 | 18:03
Áráttuhegðun fjölskyldunnar
Nokkrar umræður komu upp á tölvupóstlista stórfjölskyldunnar þegar henni var boðið í veislu til að fagna Stórhátíð 46-46. Til að sýna fram á að áráttuhegðun er ekkert einföld viðureingar braust ég inn á síðuna og ritaði þessa færslu.
Bestu kveðjur,
Sóley besta barn!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.1.2007 | 14:37
Yfir til Álfhóls aftur
Katla litla Þórudóttir var á Álfhóli í gærkvöldi og sat við matarborðið með ömmu sinni og afa. Henni leið ansi vel og skyndilega fór hún að syngja. Áður var hún búin að læra að dansa og gefa frá sér hljóð þegar víð fórum að syngja, en allt í einu komu þrír greinilegir tónar síðustu þrír tónarnir úr Atti katti nóa. Amman og afin horfðust í augu og héldu að þeim hefði misheyrst, þegar litla söngkonan endurtók leikinn. Aftur þrír greinilegir tónar!!!!
Trúi þessu hver sem vill, þarf myndband til þess að sýna þetta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.1.2007 | 00:59
Krissa Hryssa tekur orðið
Ég er líka með aðgangsorðið á síðunni enda er sjálfskipaður eigandi hennar ekki mikið tæknitröll og þarfnaðist m.a aðstoðar við uppsettningu. Ég ætla því stundum að misnota aðstöðu mína og skella inn nokkrum færslum. Í dag kom Katla til mín, lagði sig, borðaði beyglu með spægipylsu og fór með mér og ömmu sinni í Kringluna. Á morgun ætla ég svo í myndatöku með þau Tomma og Kötlu, en með henni ætla þau að leggja sitt af mörkum í baráttu Röskvu til sigurs í Stúdentaráðskosningunum í febrúar.
Hér koma nokkrar myndir af Kötlunni í dag:
Að lokum koma tvær góðar úr safninu:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2007 | 16:43
Svona lítur Katlan út núna Kristín Alma mín
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.1.2007 | 11:11
Annan mín engum lík!
Nomminn minn er búinn að vera lasinn og mamma hans var heima með hann á föstudaginn. Móðursysturnar komu í heimsókn og ákváðu svo að fara út að viðra sig með Kötluna og bjóða Önnu með á kaffihús. Þegar þær voru að kveðja uppgötvaði Tommi að það ætti að skilja sig eftir og brást hraustlega við. Hann grét svo tárin spýttust og hengdi sig utan á systur sína og sagðist alltaf vilja vera hjá henni. Þroskaða Annan mín tók utanum hann og reyndi að róa hann og sagði honum að þær væru bara að fara á leiðinlegan fund þar sem ekki mætti tala, svo hann þyrfti ekki að vera leiður. Tomminn spurði þá á milli ekkasoganna hvort það væri hjá Vinstri grænum. Já svaraði systir hans, viss um að hann gæti ekki langað á slíka samkomu. "Já, en það má stundum hvísla þar" sagði hann hágrenjandi. Hann var svo slitinn af systur sinni og það síðasta sem sást af honum þegar þær gengu frá húsinu var að hann stóð organdi í glugganum og mændi á eftir þeim.
Þegar þær voru komnar áleiðis í bæinn varð Anna þögul og móðursystur hennar reyndu að friða hana með því að þær skyldu kaupa eitthvað fallegt handa bróður hennar í bænum. Hann myndi strax jafna sig. Þá gat hún ekki meira, tárin runnu og hún sagðist vilja snúa við, hún vildi ekki skilja hann eftir. Henni var boðin fylgd til baka. "Nei, nei ég dríf mig bara" sagði hún og hljóp ein á harðaspretti heim til bróður síns.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)