Afleggjaraleikurinn og fleira ljúft.........

Fyrir helgi var ég með námskeið fyrir starfsfólk Jafnréttisstofu og kíkti í leiðinni við hjá kollegunum hjá Aflinu.  Ég er alltaf jafn ánægð með það þegar  mér tekst að sameina vinnu og einkalíf. Tommi fór með mér og við nutum menningar með Kristínu jafnréttisstýru.  Svo skruppum við í könnunarferð um  Eyjafjörðinn og fórum í afleggjaraleikinn.  Þ.e.a.s. við lékum okkur að því að kanna hvert hinir  og þessir afleggjarar myndu leiða okkur. Við fórum m.a. í Hauganes sem ég vissi varla að væri til, en reyndist myndarþorp. Veit ekki hvernig það hefur  farið gjörsamlega framhjá mér, eins  og það sé bara  nýkomið á  kortið.   Setti líka inn mynd af Hraundranga sem minnir  mig á fallegasta ástarljóð á Íslandi.

Að lokum nýjustu fréttir úr baráttunni við kreppuna.  Hef einhvern veginn  ákveðið að hafa vaðið fyrir  neðan mig. Hef misst allt traust á stjórnvöldum og veit ekki hvar ósköpin munu enda. Keypti því augnabrúnalit sem ég er ekki búin að setja á mig ennþá, en veitir ekki af við nýja svarta hárið. Fæ vonandi hjálp hjá samstarfskonum mínum elskulegum.  Svo keyptum  við hjónin lambaskrokk, nokkuð sem við höfum  ekki gert í tuttugu ár  og toppuðum sjálf okkur.............bjuggum til kæfu úr slögunum!  Hvað verður næst???????????IMG_1910IMG_1913IMG_1920IMG_1934


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æi hvað hefði verið gaman að rekast á ykkur á Norðurlandinu. Ég hlakka þó bara til þegar þið komið með stjórfjölskylduna í næstu ferð. Bjarni er líka orðin spenntur á að hitta ykkur aftur ;)

Dagný Rut Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 08:49

2 Smámynd: Álfhóll

Já, Dagný mín, komst ekki lengra en að hugsa til þín............ við eigum eftir að koma aftur........Bestu kveðjur til ykkar Bjarna.

Guðrún

Álfhóll, 3.11.2008 kl. 15:05

3 Smámynd: Álfhóll

Kristín dóttir mín var að  kíkja á  bloggið í gærkvöldi og spurði mig kurteislega hver þau væru þessi heppnu sem komust á  mynd hjá mér.  Hún er  gjörsamlega  óuppalin.

Álfhóll, 4.11.2008 kl. 10:31

4 identicon

oooojjjjjjjjjjj mamma er það KÆFAN sem er í öllum þúsund boxunum í ísskápnum á Álfhóli, þvílíkur viðbjóður. Ætli þú étir það með jafnmikilli ánægju og lifrapylsuna um daginn? get real mamma.. þú þarft ekki á þessu að halda

þóra (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 21:42

5 Smámynd: Álfhóll

Þóra endilega takktu nokkur box og færðu vinum þínum........ bara alveg sjálfsagt að rétta  fólki hjálparhönd í kreppunni. Love móðir þín í  orlofi

Álfhóll, 7.11.2008 kl. 01:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband