29.10.2008 | 21:17
Undrahundurinn Freyja, góðir vinir og nýi kreppuliturinn
Bara svona rétt að rapportera frá Hóli.
Fyrst ber að nefna að vetrardagskrá Lipurtáa er hafin okkur öllum til mikillar ánægju held ég. Veit ekki hvað er best, að hitta góða vini, fara út að ganga eða borða góðan mat.
Svo hefur verið gestagangur hjá okkur vegna litlu hvolpastelpunnar sem réttilega fær endalausa athygli. Gaman að fá gesti sem deila aðdáuninni með okkur. Verð að segja að hún er algjör undrahundur. Hún hefur þegar lært alveg að sitja og bíða og sækja og hún lætur vita þegar hún vill fara út að þið vitið.... Svo hefur hún skilið það frá fyrstu stund að hún megi ekki vera í eldhúsinu og bíður þolinmóð á parketinu á meðan við borðum. Hún er bara 8 vikna og það fylgir því mikil ábyrgð að fylgja þessu eftir. Magga P og Diddi ásamt stelpunum þeirra Diljá og Möggu Finnu sátu hér lengi á sunnudag og kenndu okkur heilmargt um hunda. Pála, Snjólaug, Benni, Stefán Steinar og Gunnar Egill dáðust að henni líka. Kristín systir mætti með hundanammi og dót handa henni. Get heldur ekki annað en dáðst að Krissunni minni. Sýnist hún vera ótrúlega flink að ala hana upp. Bara dásamlegt að hún skuli hafa látið nærri tuttugu ára gamlan draum rætast og sé nú orðin hundeigandi.
Nú svo eru það nýjasta krepputískan. Skellti mér á brúnleitan hárlit í Bónus og lét vaða í hárið á mér. Fannst hann líklegur til þess að vera líkur þeim sem ég hafði áður en ég varð gráflekkótt. Það er skemmst frá því að segja að loksins er ég farin að líkjast henni mömmu. Er með næstum því blásvart hár og hrekk í kút þegar ég lít í spegil. Það er verst að það stendur á pakkanum að það megi ekki lita yfir hann fyrr en eftir a.m.k. sjö daga. Þetta er ljómandi tilbreyting og þýðir ekkert að vera að væla yfir svona smáatriðum í kreppunni
Athugasemdir
Man alltaf eftir Önnu í Grænuhlíð (sem mér fannst annars frekar leiðinleg) þegar hún fékk græna hárið. Lenti einu sinni í því á virðulegri hárgreiðslustofu að koma út með appelsínugult hár og það var einmitt ekki hægt að lagfæra það yfir í minn ,,eðlilega" lit fyrr en nokkrum dögum síðar, en þá fékk ég líka þessa fínu djúpnæringu með, þannig að það reddaðist allt. Heyrðist helst á fjölskyldunni að hún saknaði appelsínugula hársins, þannig að þú mátt passa þig að venja fjölskylduna ekki á þetta svarta, sem ég reyndar efast ekki um að klæðir þig vel ;-)
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.10.2008 kl. 01:39
haha hef einu sinni lent í því að vera með fjólubláar strípur. Var reyndar reddað með því að lita allt hárið á mér dökkt en strípurnar fjólubláu skinu samt sem áður aðeins í gegn en kom bara ótrúlega flott út í dökku hári þó þær hafi ekki verið flottar í ljósu hári.
Hvutti litli er greinilega flott og dugleg hundastelpa
Dísa Dóra, 30.10.2008 kl. 03:50
Af hverju kemur þú ekki bara í félag hinna gráhærðu, Gunna mín? Sýnir utan á þér virðuleik þinn og lífsreynslu, sparar pening og hættir að setja þessi eiturefni í hárið á þér og dreifa þeim út í umhverfi og náttúru.
Sigrún (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 09:59
Heyr heyr Sigrún! Algjört rugl að vera að standa í þessu litastússi. Hvað er að gráu hári, getur einhver sagt mér það?
Sóley Tómasdóttir (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 20:44
Hefði haldið að kreppuliturinn væri grár..
Kristín Alma Sigmarsdóttir (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 23:21
Sigrún mín, þú veist að ég hef aldrei verið jafn trú umhverfisvernd og þú, orkan hefur farið í annað, en nú er ég alvarlega farin að íhuga að ganga í flokk hinna náttúrulegu. Og Auður, Freyja er bara dásamleg, Krissan mín þreytist ekki á að segja að hún hafi eignast einstakt eintak af Labba. Og bestu kveðjur aðrar vinkonur
Álfhóll, 2.11.2008 kl. 22:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.