Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
28.3.2009 | 15:53
Með sól í hjarta og söng á vörum...............
Ég ætla að deila því með lesendum Álfhólsnetmiðilsins að ég er á leið til Kanaríeyja með mömmu minni og Kristínu systur minni. Við ætlum að fara í viku stelpnaferð og njóta hverrar einustu mínútu. Við hlökkum allar rosalega til eftir þennan dimma og snúna vetur.
Sjálfri finnst mér helmingurinn af skemmtuninni að hlakka til og sérstaklega að hlakka til með ferðafélögum mínum. Ég hringi til mömmu nokkrum sinnum á dag og syng fyrir hana sólarlög. Ég er búin að syngja "Ég fer í fríið" og "á Spáni get ég skemmt mér fyrir lítið fé" reyndar örugglega ekki satt. Var að ljúka við sönginn "Með sól í hjarta" og er að semja prógrammið fyrir morgundaginn. Ég á eftir að syngja "Ó blessuð vertu sumarsól" "Sól, sól skín á mig" og ýmislegt fleira. Ég syng fyrir mömmu eins og lungun leyfa og mér finnst ég syngja þetta listavel! Fór meira að segja í ljósatíma áðan til þess að undirbúa húðina. Skelli með myndum sem eru táknrænar fyrir stemninguna sem ég er með í huga.
Bloggar | Breytt 29.3.2009 kl. 09:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.3.2009 | 11:03
Hrikalega stolt af þessari konu!
Sigrún vinkona mín Helgadóttir fékk í gær viðurkenningu Hagþenkis fyrir bestu fræðibók ársins. Hún skrifaði um Jökulsárgljúfrin sín og gaf okkur öllum aðgang að sinni persónulegu útgáfu af þessu tröllvaxna ævintýralandi. Hún hefði getað skrifað verðlaunabók um ýmislegt annað þessi fjölhæfa kona. Hún býr yfir einstakri þekkingu og reynslu í náttúruverndarfræðum. Ég held að hún sé klárasta kona á Íslandi þegar kemur að þjóðbúningagerð og ýmsum öðrum ómetanlegum fróðleik um verklag og næstum týnda menningu okkar.
Ég er ánægð með Hagþenkisfólk að kunna að meta fræðimennsku hennar. Á meðfylgjandi mynd er hún upp á Mælifellshnjúk í Skagafirði ásamt Júlla Bigga og Óla. Hjartanlega til hamingju elsku Sigrún!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2009 | 16:46
Sumarið nálgast............
Er komin í heilsuátak nr. ca. 1500. Markmiðið er að verða í nógu góðu formi í sumar til þess að njóta góðra gönguferða. Á dagskrá er ganga um gamla Kjalveg frá Hveravöllum að Hvítárvatni - með vinunum mínum lipru. Eftir það stefni ég á Sveinstind við Langasjó í fjögurra daga göngu með Sóleyju systur minni, manninum mínum og þeim öðrum sem vilja vera með...
Þarf að fara að klífa tinda í rólegheitum. Byrja t.d. á Helgafelli, svo e.t.v. að labba að Glym, svo fer ég á Akrafjall og það meira sem ég nenni. Ákveðin í að fara a.m.k. tvær Esjuferðir. Meðfylgjandi myndir eru úr Stakkholtsgjá og ofan af Valahnjúk. Ágætu vinir og ættingjar hnippið í mig ef þið viljið vera með.................mér finnst ekkert skemmtilegra en góð gönguferð með skemmtilegu fólki ef ég kem mér út úr húsi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.3.2009 | 11:15
Hugleikur
Álfhólsmiðillinn er fjölbreyttur og segir frá ýmsu. Nú verður sagt frá nýjasta hugleiknum mínum. Ég er stundum í vandræðum með að sofa á nóttunni og hef fitjað upp á ýmsu til þess að svæfa sjálfa mig. Hér hef ég áður sagt frá talnaleiknum sem ég flikkaði upp á með því að bródera í huganum tölustafina, eða búa þá til úr gulli og demöntum eða úr blómabreiðum. Ég er orðin hundleið á þeim leik, dettur ekkert nýtt í hug, svo nú er ég komin í annan á nóttunni sem mér finnst bráðskemmtilegur.
Mér finnst vinnan mín dásamleg og vinnustaðurinn undurfallegur en staðsettur í hræðilegu steinsteypuumhverfi. Mér finnst heimili mitt yndislegt og fallegt, en staðsett á Álfhólsveginum sem mér finnst leiðinlegur og ekki fallegur.
Undanfarnar nætur hef ég verið að leika mér að því að flytja þessar stofnanir í skemmtilegt umhverfi. Ég er búin að fara með Stígamót í alls konar umhverfi og búa til mismunandi garða og trjálundi í kringum húsið. Það hefur farið upp á Kjöl, upp í sveit og þar hef ég byggt lítil og falleg útihús með nokkrum skepnum og grænmetisgarði. Svo hef ég byggt við húsið ýmislegt sem gæti komið að gagni; almennilegan sal til þess að safna í mörgu fólki, fleiri herbergjum o.s.frv.
Í nótt flutti ég heimili mitt og skar af efri hæðina sem nágrannarnir búa á. Ég setti glerþak þannig að ég gæti alltaf fylgst með himninum og veðrinu. Svo skar ég líka af ýmsa veggi og setti gler í staðinn þannig að ég gæti næstum búið úti. Staðsetningin kom mér á óvart, mér fannst það einhvern veginn koma best út að staðsetja heimilið nálægt Reykjavík en í stórbrotinni klettafjöru, svo brimið lemdist við klettana og það skvettist á rúðurnar. Ég var búin að stækka pallinn þannig að hann var á súlum út í sjóinn. Var að basla við að hanna heitan hver nálægt húsinu, þannig að það væri náttúrleg laug í göngufæri við mig. ekki komin lengra ennþá, en ég mæli með þessum leik, hann er bráðskemmtilegur, það er hægt að gera hvað sem konu dettur í hug og hann kostar ekki krónu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2009 | 14:39
Uppdressuð á góðri stundu
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.3.2009 | 10:17
Lítil stúlka fór til læknis í gær
Katlan mín var með snert af blöðrubólgu í gær og mamma hennar kom að sækja hana á Hólinn og tók hjá henni þvagsýni og sagði henni að þær þyrftu að skreppa til læknisins. "Þá ætla ég að fara að gráta" sagði litla stelpan mín, sjálfri sér samkvæm.
Þegar mamma hennar bauð upp að þær myndu bara velja sér góðan lækni, var hún tilbúin að endurskoða ákvörðun sína. Ég undrast endalaust yfir því hvað ég er ánægð með hana. Held alltaf að hún sé á skemmilegasta aldrinum - að hún hljóti bráðum að fara að versna, en það bara gerist ekki og það sama á við um hina ormana mína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2009 | 16:56
Hvað er málið? Eruði ekkert forvitin??
Núna þegar ég er búin að setja inn mynd af nýjasta afkomenda mínum, sem er enn í framleiðslu, finnst mér fréttin vera að verða raunveruleg. Þegar mér var sagt að vinnuheiti á barninu væri Guðrún varð ég himinlifandi og mig dreymir um að það sé stúlka. Leyfði mér í dag að kaupa undurfallegan handbróderaðan kjól með vöfflusaumi handa Nöfnu minni hugsanlegri.
Verð reyndar í vandræðum með að verða vonsvikin yfir dreng. Er með eina drenginn minn hjá mér núna. Mér finnst hann svo dásamlegur að ég kikna í hnjánum þegar ég horfi á hann. Hann var búinn að semja við foreldra sína um að sofa í sínu rúmi í 5 nætur og þá átti hann að fá að kaupa dót sem hann dreymdi um. Í dag er hann búinn að afplána 4 nætur í sínu rúmi. Svo þegar í ljós kom að hann ætti að gista á Hóli í nótt, tókst honum að herja út dótið í dag. Í nótt kemur foreldrum hans ekkert við í hvaða rúmi hann sefur, hann mun því bara sofa á sínum venjulega stað - á milli ömmu og afa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.3.2009 | 13:09
Fljótstungufólk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.3.2009 | 11:38
Fallega Freyja
Freyja er engin smáskepna og hefur gjörbreytt heimilislífinu á Hóli. Þau Tommi og Kristín eru í hundaskóla með hana og hafa tilkynnt mér að ég geti ekki verið með, þetta sé bara fyrir foringja hundsins. Þau Tommi voru farin út að ganga kl. 7.30 í morgun á laugardagsmorgni og nú er hún í göngutúr með Begga, Rósu, Týru, Sóleyju systur og Kristínu dóttur minni.
Ég held hún sé bráðskörp og eigi sérlega auðvelt með að læra - allt annað en að gelta og flaðra og stela öllum þeim mat sem hún heldur að hún komist upp með að stela. Um daginn náði hún stóru osstykki, hálfu smjörstykki og hálfu normalbrauði á hálfri mínútu. Ég var "hund"pirruð við hana, þar til einhver sagði mér að labrador hundar éti eins og þeir geti lent í að fá ekki mat í heila viku. Oftast finnst mér hún samt yndisleg.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)