18.7.2007 | 10:51
Börnin heim!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.7.2007 | 16:56
Frá dömufríi á Riverunni.................
Bloggar | Breytt 18.7.2007 kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2007 | 18:18
Ekkert blogg í viku.........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2007 | 23:28
Aartinn okkar er þrítugur í dag
Hann Aart tengdasonur minn og kynbætir þessarar fjölskyldu er í dag í Hollandi með dóttur minni og barnabörnum. Gott að vita af honum í hinu landinu sínu með hinni fjölskyldunni sinni á þessum tímamótum. Hann er frábær tengdasonur, hugulsamur, duglegur, blíður og mikill pabbi. Hjartanlega til hamingju með daginn Aart okkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2007 | 16:18
Lífsmark með mér!
Best að skrifa eina færslu í stíl Dóru vinkonu minnar. Dóra skrifar um baráttu sína við köngulær og blaðbera. Ég ætla að skrifa um kynjapólitíska baráttu mína við sundlaugastarfsfólk.
Við Tommi erum búin að færa okkur úr gömlu Kópavogslauginni upp í Salalaug, en ég velti fyrir mér hvort það hafi verið rétt ákvörðun. Á gamla staðnum var gert ráð fyrir því að a.m.k. 8 konur gætu baðað sig í einu og skáparnir voru a.m.k. 50. Eina klósettið í klefanum var oft bilað, þrátt fyrir að ég léti alltaf vita þegar það virkaði ekki. Hárþurrkur voru þegar best lét 3 en gátu farið niður í eina. Á álagstímum ríkti alltaf spenna í lofti yfir því hvort kona næði þurrku áður en hún yrði of sein í vinnunna. Þá var gott að þekkja Sigríði Friðjónsdóttur saksóknara. Hún var ekkert að væla, heldur hafði með sér þurrku sem ég naut góðs af. Sigríður er enn í gömlu lauginni, en við Tommi ákváðum að elta betri aðstöðu í nýju lauginni. Þar eru mun fleiri sturtur og skápar, laugin frábær og Nautilus með fínan sal. - En það er sama þurrkumenning. Þurrkurnar voru þrjár í byrjun, það hefur verið ein um stund og í morgun var engin!
Mín fram í afgreiðslu með rennandi blautt hárið og hálfklædd............. Þegar ég spurði um hárþurrku var mér sagt að þær væru ónýtar. Ég bað um að fá að tala við sundlaugarstjórann en hann var ekki við. Ég bað um skilaboð og var vísað á kvörtunarbókina. Stúlkan fann til bókina, leit á hana og sagði, nei annars hún er orðin full. Ég er viss um að hún er full af athugasemdum um þurrkuleysið. Ég bað um hana samt og gat skrifað stutt skilaboð aftan á kápuna. Hafði skrifað sams konar skilaboð í gömlu lauginni mörgum sinnum. Finn bara hvernig adrenalínið spýtist um æðarnar þegar mér dettur þessi barátta mín í hug. Er það ekki merkilegt að á tímum flottrar sundlaugamenningar skuli stjórn sundlauganna í Kópavogi vera í höndum karls sem ekki ber nokkurt skynbragð á, eða ber enga virðingu fyrir þörfum kvenna í sturtuklefunum. Urrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
6.7.2007 | 10:11
Stemman núna!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.7.2007 | 18:13
Verkefni dagsins!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.7.2007 | 11:40
Flutt!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.7.2007 | 21:46
Svipmyndir dagsins!
Fengum góða heimsókn gamalla heimalninga á Hólinn í dag. Dúóið Krissan/Gussan mætti með litlu fallegu Heklu, sem er yndisleg 7 vikna stúlka, greindarleg, sterk, falleg og skynug.
Garðar og Kristín buðu okkur svo á Stokkseyri að skoða lítið hús sem þau höfðu séð auglýst. Þau voru svo spennt að það lá við að þau tækju sængurnar með. Á Hellisheiðinni voru þau búin að plana þátttöku í lókalpólitíkinni og voru orðin æst yfir því hversu seint gengi að breikka Suðurlandsveginn. Krissan ætlaði að sækja um vinnu sem fangelsissálfræðingur á Hrauninu. Þau ætluðu að fá sér hund og landnámshænsni og voru langt komin með að skipuleggja garðinn þegar við keyrðum að húsinu. Húsið reyndist eitthvert versta greini sem við höfum séð, ótrúlegt að það skyldi vera mannabústaður. Enduðum í grillveislu hjá samsettu fjölskyldunni góðu sem var staðsett í sumarbústað. Katlan mín hafði ekki séð ömmu sína svo lengi að hún neitaði að koma til mín og faldi sig á bakvið Simma. Allt of langur aðskilnaður á milli ammga eftir mínum smekk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)