14.3.2009 | 16:56
Hvað er málið? Eruði ekkert forvitin??
Núna þegar ég er búin að setja inn mynd af nýjasta afkomenda mínum, sem er enn í framleiðslu, finnst mér fréttin vera að verða raunveruleg. Þegar mér var sagt að vinnuheiti á barninu væri Guðrún varð ég himinlifandi og mig dreymir um að það sé stúlka. Leyfði mér í dag að kaupa undurfallegan handbróderaðan kjól með vöfflusaumi handa Nöfnu minni hugsanlegri.
Verð reyndar í vandræðum með að verða vonsvikin yfir dreng. Er með eina drenginn minn hjá mér núna. Mér finnst hann svo dásamlegur að ég kikna í hnjánum þegar ég horfi á hann. Hann var búinn að semja við foreldra sína um að sofa í sínu rúmi í 5 nætur og þá átti hann að fá að kaupa dót sem hann dreymdi um. Í dag er hann búinn að afplána 4 nætur í sínu rúmi. Svo þegar í ljós kom að hann ætti að gista á Hóli í nótt, tókst honum að herja út dótið í dag. Í nótt kemur foreldrum hans ekkert við í hvaða rúmi hann sefur, hann mun því bara sofa á sínum venjulega stað - á milli ömmu og afa.
Athugasemdir
Þetta er stórglæsilegt vinnuheiti og verður eflaust stórglæsilegt barn líka (eins og það á kyn til), hvort sem það verður stelpa eða strákur!
Hvað varðar kjólinn sem þú keyptir þá eiga eflaust eftir að fæðast fleiri börn ef þetta verður strákur. Guðný Björkin mín fékk til dæmis tvo kjóla í vöggugjöf sem keyptir og prjónaðir voru á hann Snolla í móðurkviði. ;)
Kristín Björk (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 12:54
Takk fyrir þetta Kristín Björk mín, gott að fá hlutlaust mat á hið góða kyn. Ein vinkona mín sagði réttilega þegar ég sagði henni að ekki væri vitað hvers kyns barnið er "Hver segir að strákur geti ekki heitið Guðrún?" Við það er aðeins hægt að bæta "Og hver segir að strákar geti ekki verið í fallegum kjól?"
Álfhóll, 15.3.2009 kl. 18:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.