Afríkublómið mitt

IMG_2530IMG_1287Þetta er einmitt dagurinn til þess að skrifa um afríkublómið mitt sem er á  leið upp úr þakinu.  Við hliðina er mynd af því frá því í maí í fyrra.  Spurning hvort það muni blómstra?  Rósa mágkona mín keypti fræ í S-Afríku og segir að þetta sé fallegasta blóm í heimi.  Í dag skipti ég á blómunum mínum.  Það er komið vor og mér líður  alltaf jafn vel þegar ég er búin með þetta uppáhalds vorverk.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá, hvað þessi mynd minnir mig á að það sé að koma VOR!  Mér finnst það æðislegt...sumarið er gjöf sem ég fæ fyrir gráðuna mína sem ég er á kafi í að vinna..dreymir kenningar og texta á nóttunni.  Vonandi gekk allt vel fyrir austan í snjónum.  Föstudagskonurnar mættu í sínu fínasta pússi og tóku nokkrar sveiflur að vanda..Ræll og Polka..er alveg dýrlegt að sveifla þessari konu!!!:)  Verðum að fara að senda Ungfrúnni kveðju í morgunþættinum okkar..hmm!  Eigðu góða helgi með fjölskyldunni þinni:)  Kveðja frá Holtsgötunni

Björg (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 22:36

2 Smámynd: Álfhóll

Hjartans þakkir fyrir góðar  kveðjur Björg mín.  Efast ekki um að þið hafið hagað ykkur á  föstudag eins og venjulega á meðan við í Austfjarðadeildinni messuðum yfir Austfirðingum og skoðuðum yndislega hreindýrahjörð á  Fagradal.  Farðu nú að klára ritverkið svo þið Holtsgötukonur getið farið að njóta vorsins.  Gangi þér sem allra best. GJ

Álfhóll, 6.4.2008 kl. 10:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband