10.10.2007 | 14:53
Góðan daginn!
Annsan mín var að teikna og skrifa og bað mig um að koma með einhver orð svo hún gæti æft sig í stafsetningu. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því hvað stelpurófan mín er ótrúlega klár. Ef einhver man það ekki, þá minni ég á að hún er nýorðin 8 ára. Ég sem ætlaði að koma með verulega erfið orð, en mér tókst ekki að koma henni á gat. Og má ég benda á skriftina! Ég gæti ekki skrifað svona vel þó ég reyndi.
Ömmur mega alveg segja frá afrekum barnabarnanna sinna og eiga að gera það og hana nú!
Athugasemdir
Hún er yfirburðar....
Hallgerður Langbróók, 10.10.2007 kl. 15:19
Annsan er og verður náttúrlega bara snilli.
Þvílíkur dugnaður - gott að eiga góða ömmu sem kemur auga á slíkt og leyfir okkur hinum að dáðst að.
kv dia
diana (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 17:19
...og feilar ekki einu sinni á þremur téum í "þátttakan". Frábært stelpuskott :)
Thelma Ásdísardóttir, 10.10.2007 kl. 18:38
Ps. allt gekk vel í Finnlandi :)
Thelma Ásdísardóttir, 10.10.2007 kl. 18:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.