24.9.2007 | 15:25
Í hestamennsku með fjölskylduna!
Ég fór í langþráða hestaferð með Hjartagullinu mínu og Ástu vinkonu á sunnudaginn. Við Ásta elskuðum hestamennsku þegar við vorum stelpur,en það eru u.þ.b. 40 ár síðan við fórum síðast saman á hestbak. Annsan mín fannst mér eins og mamma hennar endurfædd þegar við vorum með Andvara í fóstri í gamla daga á Laugarbakka í Miðfirði. Hún naut sín til fullnustu, datt inn í eigin heim eins og mamma hennar gerði þegar henni leið virkilega vel. Mikið rosalega var þetta gaman. Í hestamennsku með fjölskylduna!
Athugasemdir
Ég les þessa færslu sem svo, að búið sé að bjarga Önnu frá þessu fótbolta óláni. Spurning hvort amman hafi ekki haft rétt fyrir sér, þrátt fyrir hávær mótmæli dætra sinna. Með hesta kveðju. Árni frændi
Árni Birgisson, 24.9.2007 kl. 22:35
Árninn minn, þú skilur mig svo vel! Held að Anna hafi eða muni frelsa sig sjálf. Ættum við að slá í eitt eða tvö hross saman, angarnir tveir Bigga og Tomma.
Bestu kv
Álfhóll, 25.9.2007 kl. 13:31
Hestar eru málið. Hér með er formlegt boð í Hestferð, þegar dýrin koma úr Hagagöngu í desember. Góður túr og kakó.
Garún, 26.9.2007 kl. 12:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.