20.3.2007 | 14:22
Lítil stúlka í sjúkrabíl
Katlan okkar er svoddan grjón að hún smýgur alls staðar. Hún var í pössun hjá Kristínu móðursystur sinni í dag og tókst að detta úr stólnum sínum þó hún væri bundin. Hún missti meðvitund og frænkan hennar þurfti að skvetta á hana vatni til þess að hún rankaði við sér. Svo var hún að detta inn og út um stund. Hún fór í sjúkrabíl upp á spítala í skoðun og þar var sagt að allt væri í lagi með hana. Hún sofnaði strax, en ef hún fer að kasta upp á að fara með hana uppeftir. Hræðilegt alveg, en fór betur en það hefði getað gert. Vorkenni Krissunni minni eiginlega enn meira.
Athugasemdir
Litli engillinn. Hræðilegt að þurfa að fara í sjúkrabíl og uppá spítala. Skil mæta vel að allir skuli hafa verið grátbólgnir. Ég táraðist næstum við að heyra fréttirnar. En yndislegt að hún hafi vaknað eldhress eftir smá lúr - hún þolir greinilega ýmislegt hún Katla.
Dagný Rut Haraldsdóttir (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 00:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.