20.2.2007 | 21:25
Ánægðar mæðgur
Í dag hóf stóra stelpan mín umræðu í borgarstjórn Reykjavíkur um alþjóðlega kaupstefnu klámiðnaðarins sem fyrirhuguð er á Íslandi. Borgarstjóri lagði fram tillögu gegn ráðstefnunni sem samþykkt var einróma. Foreldrar Sóleyjar sátu á pöllunum og horfðu á barnið sitt í nýja kjólnum sínum og voru enn einu sinni stolt af henni. Fóru svo heim í hreiðrið sitt þar sem nokkrir af burtflognu ungunum höfðu safnast saman sem oftar.
Athugasemdir
Til hamingju öll
kv. Dia
diana (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 21:16
Til hamingju með daginn, flottustu frænkurnar mínar!
kv. Guðrún Harpa
Guðrún Harpa (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 18:14
Rómeo og Júlús sjá: http://partners.blog.is
Óskráð (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 02:56
Kæru foreldrar
Til hamingju með hana Sólina okkar. Var voða ánægjulegt að opna dagblöðin um helgina og sjá hana þar fremsta í flokki ;)
kveðja
Snjóaug Biggýs
Snjólaug (IP-tala skráð) 28.2.2007 kl. 15:09
Já, bíddu bara Snjólaug - Króníkan kemur út á morgun... Allt að gerast. Bestu, S.
Sóley Tómasdóttir (IP-tala skráð) 28.2.2007 kl. 15:44
Til hamingju með dótturina, fyrst mér hlýnar um hjartarætur þá hlýtur eitthvað ennþá meira að bærast í forerldrahjartanu!
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 28.2.2007 kl. 20:21
Ekki hægt að skrifa athugasemdir á bloggið hjá þér Sóley mín þannig að ég læt mér þennan miðil duga
Finnst þú ótrúlega virðuleg á forsíðunni. Bjóst seint við þessu. Bara flott hjá þér. Ótrúlegt hvað þú hefur náð að læra mikið á þessum árum sem ég var með þig í kennslu
Kveðja
Snjólaug
Snjólaug Birgisdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 13:42
Hjálp, dætur góðar.
Kemst ekki inn til þess að skrifa færslur, stödd í New York og búið að breyta um lykilorð. Kristín viltu redda málunum fyrir mig, það varst þú sem stofnaðir þessa síðu.. Annars allt í góðu.
Móðir ykkar
Guðrún (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 15:44
Já, ég var einmitt að velta því fyrir mér hvernig stæði á því að þú bloggaðir ekkert um helstu blöð og tímarit á Íslandi þessa vikuna. Með tvær dætur og eina dótturdóttur á forsíðunum... Flottar!
Kristín Björk (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 16:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.