18.2.2007 | 18:20
Helgi á Álfhóli
Það góða við að þrífa sjaldan er að breytingin verður svo mikil og allt verður svo skínandi hreint og fallegt. Í gær þrifum við og fórum svo í mat til Begga og Rósu. Var að hugsa um að bjóða aldrei neinum heim, til þess að hreinlætið myndi vara sem lengst. Í morgun hringdi Sóley og vildi koma á Álfhól og baka bollur. Þær misheppnuðust alveg eins og þær gera alltaf hjá mér. Aldrei, aldrei, aldrei vatnsdeig aftur á þetta heimili. Fór út og keypti bollur sem minntu á bréf og svo kom bara brot af mínum allra nánustu.........
Athugasemdir
ég er að ólöstuðum einn færasti vatnsdeigsbakari á landinu ..... humm eða þar til rétt áðan því í fyrsta sinn í 25 ára sögu minni sem vatnsdeigsbollusnillingur þá misheppnuðust þær - þ.e. útlitslega séð .... bragðið la la, svona rétt hægt að slafra í sig nokkrum.
annars vorkenni ég þér ekki þó vantsdeigsbollugerð liggi ekki fyrir þér Guðrún mín því þú getur gert flest annað betur en aðrir.
kv. úr Hafnarfirðinum frá mömmu nöfnunnar
diana (IP-tala skráð) 18.2.2007 kl. 18:29
Þið eruð frábær fjölskylda, ég er ríkari að hafa fengið að taka þátt með ykkur í nokkur ár.
Kveðja Anna Kristmunds.
Anna Kristmundsdóttir (IP-tala skráð) 18.2.2007 kl. 22:21
Og elstyngsta barnabarnid thitt bara bollulaust i utlondum..
Kristín Alma (IP-tala skráð) 19.2.2007 kl. 10:55
Af hverju eru ekki myndir af bollunum sem þið bökuðuð??
Kristín Björk (IP-tala skráð) 19.2.2007 kl. 19:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.