Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Góður morgun

Ég ætlaði að vara á Ísafirði með námskeið fyrir aðstandendur Sólstafa, en veðurtepptist og ákvað að nota tímann vel heima.  Held ég sé dálítil keppnismanneskja, fæ mikið kikk út úr því að slá sjálfa mig.  Synti 2 kílómetra í morgun og það er nýtt persónulegt met.  Svo borðaði ég hollan morgunmat með Kötlunni minni.  Ég sé nú að hún hefur aðeins stækkað, þó hún sé mikið grjón.

Þóra og Katla


Hlunkurinn minn

Kristín dóttir  mín er búin að búa til persónulega toppmynd fyrir  mig.  Hún er af Hlunki. Góð Kristín!  Kötturinn sem er átta ára, er almennt lagður í einelti af gestum og gangandi.  Hann þykir feitur og illa vaxinn og svo laushára að það fólk sem lætur vel að honum fer út héðan kafloðið og geðvont eða búið að spæna upp fatalímrúllur heimilisins.  Hann getur ekki veitt lengur vegna þyngsla, en hleypur máttleysislega af stað á eftir fuglunum í garðinum nokkur skref og kemur svo vælandi til baka.

Mér finnst Hlunkur yndislegur.  Hann þekkir hljóðið í bílnum okkar og tekur alltaf á móti okkur fagnandi í innkeyrslunni.  Hleypur á undan okkur að dyrunum og tekur kollsteypur af ánægju að sjá okkur.  Hann hefur aldrei urrað eða klórað og malið í honum veitir mér hugarró og hlýju.  Það ættu að vera Hlunkar á öllum heimilum.


Pínleg atvik

Þegar ég rifja upp skemmtilegar minningar úr baráttunni, eru það oft mistökin og misheppnaðar aðgerðir sem eru hvað fyndnastar.  Oftast þykja mér  þessi atvik þó ekki fyndin fyrr en tiltölulega  löngu síðar. 

Ef við erum leiðar eða óupplagðar á Stígó, rifjar einhver upp hallærisaðstæður eins og þegar við héldum haustfundinn fræga og velauglýsta. Raðað var upp fundarborði og stólum og við fórum samviskusamlega í gegnum alla dagskrána með Dóru sem fundarstjóra, Díönu sem ritara og Björg sýndi hörmulega boli sem átti að selja.   Ég þrumaði erindi yfir gestunum og framkvæmdaáætlun og pólitískar áherslur voru bornar fram til  samþykkis.   Á fundinn mættu tvær konur. 

Í dag keyrði ég 40 kílómetra til þess að halda erindi.  Á fundinn mætti sú sem setti fundinn, fundarstýra, formaður undirbúningsnefndar, við fjögur sem fluttum erindi - þar af karlinn of seint -og tvær konur.  Öll lékum við hlutverkin af mikilli innlifun og töluðum í tvo tíma.  Vonandi fóru þessar tvær konur upplýstari heim.


Tæknileg aðstoð óskast!

Ágæta fjölskylda og aðrir tæknifræðingar í kringum mig.  Langar svo að skipta út toppmyndinni á síðunni minni og setja  inn eitthvað persónulegra. Búin að prófa ýmislegt án árangurs.  Býð kaffi á Hólnum eða á Stígó og súkkulaðið sem ég má ekki borða sjálf, fyrir eitthvert séníið.

Búin með textann!

Held að heilsuátak númer hundrað og eitthvað sé að skila sér. Synti 1200 metra í morgun og kláraði  dagsverkið sem ég miklaði fyrir mér.  Tommsinn minn litli sagði í kvöld að mamma sín og amma væru fallegustu konur á Íslandi.  Fallegustu karlarnir eru að hans mati pabbi hans og afi. 

Læt fljóta með myndir af  stemmningunni á Álfhóli í kvöld eftir hrísgrjónagrautinn, sem var kærkominn eftir páskasteikurnar.

IMG_2265IMG_2264IMG_2263


Hlaðin starfsorku

Í kvöld mun  ég setja  inn færslu um afrek dagsins.  Eftir góða hvíld yfir páskana ætla ég að rusla af ársskýrslutextanum í dag. Það mun ekki standa á texta þegar tölfræðin loksins verður klár.  Ég mun vinna á eldingahraða og skrifa gáfulegan texta.


Persónulegt met

Eftir að ég var greind sem félagsfælin og andlitsblind var farið að fjara undan sjálfsmyndinni.  Einhver myndi segja að ég hafi haft efni á því.  Hef þar að auki hundsað líkamsrækt með sjáanlegum afleiðingum í allt of langan tíma og er að byrja að synda.  Synti kílómetra tvisvar í vikunni og ákvað að stefna á 1200 metra í morgun.  Á leiðinni mundi ég eftir því að Þráinn Bertelsson hefði montað sig af því í einhverju opinberu bloggi um daginn að hann hefði synt 1500 metra og það væri persónulegt met.  Þótti það mikið grobb, en skildi þó alveg kikkið að slá sjálfan sig.  Ákvað að það væri ekkert merkilegt og ég stefndi á 1500 metrana.  Þegar þeir voru búnir mundi ég eftir því að Þráinn er miklu eldri en ég, svo ég þyrfti að gera betur til þess að jafna og synti 1700 metra.  Það hef ég aldrei gert áður og er tiltölulega ánægð með mig í dag. Skelli með nýlegri sjálfsmynd.

 

IMG_2211

Frábært frí

IMG_2248IMG_2257IMG_2250IMG_2262IMG_2252IMG_2251

Hvað er betra en að hlaða batteríin í faðmi fjölskyldunnar um páskana?  Það var ekki eitt dautt móment.  Kristín og Garðar fluttu inn í nokkra daga því Hanne vinkona Þóru kom til landsins og fékk lánaða íbúðina þeirra.  Krissan mín sló í gegn með marokkósku lambi ala Jamie Oliver í gærkvöldi og Garðar bauð upp á eftirrétt ala Royal. Katlan kúrði í ömmu og afa rúmi í nótt.  Svo fórum við með elstu dóttur okkar, Önnu og Tomma í Tungu til Margrétar og fjölskyldu.  Margrét greindi okkur Sóleyju með félagsfælni .................búið að ritskoða textann hér.............  .  Anna og Tommi möluðu í félagsskap uppáhaldsfrænda sinni þeirra Ara, Bergþórs og Snolla míns og mamma og pabbi nutu sín í botn.


Páskafrí á Suðurlandi

IMG_2231IMG_2237IMG_2238

Stundum höfum við hjónin rætt það hvort við ættum að  fá okkur sumarbústað.  Tíminn er ekki alveg kominn, held ég.  En það er fínt, þar sem sumarbústaðaeigendum í fjölskyldunni fer ört fjölgandi og mikið gaman að ramba á milli.  Á skírdag fór ég í fertugsafmæli í Kjarnholt til Thelmu samstarfskonu minnar. Tommi var hjá Lilju systur sinni á meðan að setja  upp með þeim eldhúsinnréttingu í nýja bústaðnum.  Gistum þar og færðum okkur svo yfir í Hákot til Kristínar systur og Kristjáns í mikið glæsihýsi.  Eftir mikla átveislu fórum við systur í pott og lágum þar lengi kvölds.   Spurning hvort ég dríf ekki líka upp í Tungu til Margrétar systur á morgun eða hinn?


Fallegar fjölskyldumyndir frá skírdagsmorgni

IMG_2207IMG_2216IMG_2225IMG_2228IMG_2229IMG_2223

Síðan ég var greind hefur líf mitt allt orðið auðveldara og ég mynda fólkið mitt eins og ég skynja það.

Gleðilega páska

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband