Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Góð byrjun á deginum

Á leiðinni í vinnuna í morgun kom ég við í bakaríi því ég átti von á  gestum á Stígamótum. Í bakaríinu voru feðgar á undan mér í röðinni. Drengurinn virkaði u.þ.b. þriggja ára.  Þeir tóku góðan tíma í að velja  það bakkelsi sem þá  langaði mest í og keyptu kókómjólk með.  Svo settust þeir niður og fengu sér að borða.  Á meðan ég var að versla komst ég ekki hjá því að heyra samræður þeirra  feðga.  Sonurinn naut þess að borða kleinuhringinn sinn og spurði á milli bita "Pabbi, hvað þýðir að vera hamingjusamur"? og pabbinn leitaðist við að svara........á  einhvern hátt sem ég heyrði ekki. Gat ekki annað en gengið til þeirra  til þess að dáðst að þeim og  á eftir  mér kom önnur  kona og blandaði sér í samræðurnar......."þetta bjargaði deginum" sagði hún og við skildumst öll brosandi.


Við Tommi og Hlunkur elskum að taka á móti góðum gestum!

IMG_1261IMG_1264

Gestapenni á Álfhólsfréttum er Anna Schalk Sóleyjardóttir:

IMG_1260Það er verið að safna fyrir skíða-ferð og ég hlakka mikið til því þá get ég farið í risa stóru lyfturnar og meira að segja líka stóla-lyfturnar!!!Við förum ég ,Kristín , Garðar, mamma ,pabbi ,amma ,afi ,Tommi og svo kannski Þóra. Svo kann ég  svig, fara ein í hólana og stökkva í þeim og ýmislegt annað!!!Þetta er svo gaman  að það er ekki eðlilegt!!!Grin


Er að fara að virkja.............

Í morgun þegar ég vaknaði, fann ég að ég var í góðu sambandi við kraftinn minn.  Það er dásamleg tilfinning og ég er staðráðin í að virkja hann í dag. 

Ég ætla að beina honum í gegnum lyklaborðið yfir í powerpointið og þaðan á kubb og svo í tengsl við hinn ýmsa tæknibúnað í næstu viku.  Ólíkar útgáfur um mansal, feminisma, einkenni ofbeldismanna  og fórnarlamba þeirra og um Austfjarðaverkefnið verða svo sýndar á  Stígó, í HÍ, hjá Feministum, á Egilsstöðum, Reyðarfirði og e.t.v. víðar og þaðan mun orkan fara inn í sem flesta hausa sem munu allir kaupa boðskapinn og svo munu eigendur hausana taka þátt í að skapa betra samfélag.  Þannig verður þessi dagur.......


Hér erum við að vinna!

IMG_1252

Við Birta erum að hjálpast að við að skrifa fyrirlestur í dag.........


Fjöllin mín

IMG_1242

Ég veit það, ég kann ekkert á myndavélina mína.  En þetta er samt fjallasýnin sem mér  þykir  vænst um. Þarna sér í rætur  Strúts og svo er Eiríksjökullinn órjúfanlega tengdur rótum mínum í sveitinni.  Þetta er hluti af fjallasýninni út um  eldhúsgluggann á Húsafelli.  Þarna var ég að ganga  í gær, ætlaði á Strút, en komst ekki vegna þoku.  Ég bara finn hvernig batteríin hafa hlaðist......


Nokkrir skottúrar bara......

Í páskafríinu skruppum við bara nokkra skottúra.  Hér koma svipmyndir: Við Kristín  systir gengum á Helgafell og vorum allt í einu komnar  í Hákot og þaðan er  mynd af þeim Kristjáni.  Svo fórum við í yndislega ferð austur  í sveit og Sóley systir  og Pétur komu með okkur. Þar fann ég örverpið mitt  eins og blóma í eggi með tengdafólkinu sínu.  Við skoðuðum rómaðan bústað í Brú og vorum boðin til Guðbjargar  og Stefáns í súpu og brauð.  Það var farið í skoðunarferð um landareignina og Garðar  tengdasonur minn sýndi mér  hvar hann ætlar  að byggja sér  sveitasetur - gröfurnar  verða komnar líklega með haustinu. Frá Eyvindarholti eru myndirnar  af Stefáni, Guðbjörgu, Kristínu dóttur  minni og Garðari tengdasyni mínum.  Ég fer  ekki fram á  meira varðandi ástarlíf dætra minna en að þeim líði vel með kærustunum sínum.  Krissan mín blómstrar með Garðari og fólkinu hans og það er ansi dýrmætt. Þaðan er  líka  mynd af Pétri systursyni mínum og dálitlum  uppeldissyni að skoða útsýni - ekki ósvipað því sem Gunnar  á Hlíðarenda skoðaði forðum þegar  hann ákvað að fara  ekki utan.  Ég myndi ekki gráta það þó Pétur tæki svipaða ákvörðun eftir 15 ár í Noregi.  Nú svo skruppum við í guðdómlegan göngutúr með Margréti og Má meðfram Tungunni.  Kíktum í kaffi til Steina frænda og Ingu á Húsafelli og fórum svo á  Mr. Skallagrímsson í Borgarnesi.  Gaman, gaman og svo aftur í Tungu til Margrétar og  Más þar sem við gistum í nótt.  Að síðustu myndir af þeim Bergþóri og Snorra systursonum mínum.IMG_1194IMG_1191IMG_1215IMG_1217IMG_1235IMG_1234IMG_1232IMG_1231

Vinir mínir

IMG_1201IMG_1202IMG_1200


Í rólegheitunum

Vorum að skoða myndir hjónin í rólegheitunum.  Kíktum á  ævintýraferðina okkar til Nepal og allt það sem við upplifðum þar.  Erfitt að  koma því til skila við aðra, en eitt af því sem við sáum var Phashupatinath hofið sem stendur við hina heilögu Bagmatiá.  Þar brenna hindúar látna ástvini.  Á þessu myndbandi má sjá fátæka menn sem eru að fara að brenna líkið sem liggur við hliðina á þeim. Þeir lauguðu það upp úr ánni og tóku það úr hverri spjör inni í dúknum og báru svo eld að hárinu á líkinu.  Samtímis er verið að hlaða bálköst til þess að brenna barnslík. Sú líkfylgd var öllu viðhafnarmeiri.  Alveg hreint ótrúlegt að fylgjast með þessu.


Kolrugluð!

Þó ég sé á flesta vegu fullkomin kona þá er ég með einstaka veikleika.  Einn af þeim virðist vera ósjálfráð stelsýki.  Samstarfskonur mínar koma reglulega inn til mín og sækja sér penna, því ég stel öllum þeim pennum sem ég kemst yfir.  Finnst ég venjulega þurfa að hafa penna við höndina til þess að  skrifa niður dúndrandi hugmyndir eða verkefni sem ég vil vinna eða til þess að minna mig á eitthvað sem ég hef gleymt.  Veit ekki af því þegar ég næ mér í penna og sting svo á mig.  Allar töskur sem ég á eru með nokkrum pennum og ég hef ekki hugmynd um hvaðan þeir koma. 

Ég stal einu sinni sálmabók í skírn í Dómkirkjunni og veit ekki hversu margir tóku eftir því þegar ég stakk henni á mig eftir messuna.  Bara fann hana í veskinu mínu þegar ég kom heim og skömmustuleg varð ég að biðja hana Þórunni mína að skila henni fyrir mig og reyna að útskýra stelsýki mína.  Ég stal þráðlausum heimilissíma foreldra minna og fór  með hann heim.  Einu sinni stal ég lyklunum hans pabba, bæði hús- og bíllyklum og hann var búinn að spyrja mörgum sinnum í nokkrar vikur og ég sór og sárt við lagði að ég hefði ekki snert þá.  Þá bankaði Guðmundur hennar Lilju mágkonu uppá hjá þeim og sýndi honum lykla sem höfðu verið skildir eftir hjá  þeim.  Þau búa í sama húsi og foreldrar mínir og stundum heimsækjum við Tommi tvö heimili í sama húsi.  Hann hafði prófað þá á alla bíla á planinu og þeir pössuðu að pabba bíl. Pabbi elskar að hafa eitthvað svona á mig til þess að minna mig á ófullkomleika minn. Hann skemmti sér konunglega yfir lyklaþjófnaði mínum.

Í morgun ætlaði ég út í búð og á leiðinni ákvað ég að hringja í Tomma. Var búin að slá inn númerið þegar ég áttaði mig á að ég var með sjónvarpsfjarstýringuna en ekki símann minn.  Veit ekki af hverju ég stel svona óspennandi hlutum. Ætti e.t.v. að fara að æfa mig í að stela peningum eða gotteríi eða demöntum. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband