Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Sófakynslóðin vann!

Og ég sem ætlaði bara að skrifa um Afríkuplöntuna mína í dag!  Krissan mín var að hringja frá  Patreksfirði.  Þau Garðar skruppu á rauða drekanum á kvikmyndahátíð með Sófakynslóðina. Haldiði ekki bara að myndin hafi unnið! Kom mér svosem ekki á óvart, en mikið er ég rífandi stolt af tengdasyninum!

IMG_2320

Að hvíla hugann

IMG_2530Fór í tvær útskriftarveislur um helgina hjá Jóni frænda mínum Bergþórssyni  yngri og hjá Öddu Kristínu dóttur Ástu vinkonu.  Efnilegt ungt fólk sem getur héðan í frá gert það sem því listir.

 Á morgun legg ég upp í 1600 km. fundaferð um landið ásamt kröftugu Stígamótafólki.  Við erum búin að vanda okkur  eins og við getum við undirbúninginn og allt að verða  klárt.  Hlakka mikið til, en þetta verður jafnframt vinnutörn og ég hef því hvílt mig um helgina.  Einbeiti mér að því einfalda og ánægjulega. 

Setti inn mynd af plöntu sem Rósa mágkona gaf mér fyrir tveimur árum. Hún keypti fræ í Suður-Afríku af blómi sem hún segir að sé það fallegasta sem hún hefur séð.   Það ku blómstra djúpbláum og gulum stórum blómum. Í sumar hefur það tekið verulegan vaxtakipp og ég fylgist spennt með.  Krossa  putta og læt mig dreyma um blómgun. 

 


Ferðasumar

IMG_1610IMG_1605IMG_1612IMG_1609

Það er að bresta á  með sumri, ferðalögum og upplifunum.  Fátt finnst mér skemmtilegra.  Verð að fara að koma mér í almennilegt gönguform. Hef ekki gefið mér tíma.............. óafsakanlegt, finn það þegar ég skrifa þetta.   Best að koma mér í leikfimi. Núna! Farin...............


Tómas Schalk Sóleyjarson

IMG_2515IMG_2516

Þreyttur og fallegur ömmudrengur.


Myndbrot úr hversdagslífinu

IMG_2522IMG_2513IMG_2525´

Hér eru myndir af gjöf sem okkur Tomma var gefin í gær, merk rannsókn um staðalmyndir kvenna í bankakerfinu eftir Kristínu Tómasóttur BA í sálfræði og kynjafræði,  lítill drengur í arsenalbol með handgert demantahálsmen sem hann gerði sjálfur og í gúmmískónum sem Katrín Anna gaf ömmu hans á 50 ára afmælinu.  Að lokum er svo mynd af Sóleyju og Kötlu sem sáu um eldamennsku á Hólnum í gærkvöldi.


Hátíðir

Nýi bílinn og fleira flott 122DjammogKaffibarinn077-vi

 bodB23

 

 

 

 

 




Það er merkilegt hvernig atburðir raðast.  Stundum fer ég ekki í afmæli mánuðum saman.  Í þessari viku er ég búin að fara í tvö 60 ára afmæli og eitt 40 ára.  Í þar næstu viku er ég boðin í 50 og 40 ára afmæli og ég er boðin í fjórar útskriftir.  Missi af tveimur afmælum og þremur útskriftum vegna eigin ferðalaga.   En eina hátíðina ætla ég að hýsa sjálf og hún ætti ekki að verða leiðinleg, það er væntanleg útskrift Kristínar dóttur minnar sem er að ljúka BA í sál og kynjafræði. 

Verð að viðurkenna að  ég er ekki alveg laus við spennutilfinninguna sem ríkti á heimilinu þegar Krissan, Gussan og Kristín Þóra útskrifuðust úr Menntaskóla.  Þær höfðu nýtt námsárin til allt annarra hluta en mennta og ég var farin að halda að þær myndu allar flosna úr námi og aldrei þroskast nógu mikið til þess að taka ábyrgð á sjálfum sér. En viti konur og karlar!  Þær settu undir sig hausinn síðasta árið og tóku a.m.k. tvöfalt nám, sem mér þótti alveg út í hött vegna fyrri afkasta.  Beit í tunguna á mér að halda ekki aftur af þeim og datt ekki í hug að þær héldu þetta  út.  Þegar þær svo fóru að huga að útskrift, var ég með hnút í maganum yfir vonbrigðunum sem þær hlytu að verða fyrir því ég taldi útilokað að þær stæðust próf.  Ég hafði mikla samúð með Gunnhildi námsráðgjafa sem var búin  að vera í fullu starfi við að greiða vonlitla leið þeirra, það var búið að úthýsa þeim úr mörgum áföngum.  Þær skemmtu sér konunglega eins og þær hafa alltaf gert og æfðu oft og nákvæmlega hvernig þær myndu setja  upp  húfurnar.  Þær bjuggu til eftirminnilegt  frumsamið söngatriði um námsárin og saumuðu glimmerbúninga í stíl Bobbysocks  á tveimur tímum og fluttu við mikla lukku á dimmisjon.  Þær náðu allar eftir ólýsanlegan próflestur sem flestir kennarar skólans, námsráðgjafar og stjórfjölskyldur þeirra komu að sólarhringum saman. Þar kom að þær settu upp húfurnar æfðum höndum við hátíðlega athöfn í skólanum sínum og mömmurnar táruðust smá.  Hér var svo haldin ansi lífleg og skemmtileg útskriftarveisla.

Í dag eru tilþrifin mun minni. Kristín Þóra hringdi um daginn og bauð okkur Tomma í útskrifina sína úr  Listaháskólanum.  Mikið þótti mér vænt um það.  Gussan liggur á sæng með Hekluna sína, en gengur ljómandi vel að læra jarðfræði.  Krissan mín mun útskrifast þann 16. júní og það verður ekkert minna en hljómsveit hér í garðinum ef hún fær að ráða.  Þroskaðar og gerðarlegar ungar konur sem eru allir vegir færir.

 


Það er fædd lítil Hekla

HryssanGussanIMG_0783freshmeata40

Okkur þykir ekki leiðinlegt á Álfhóli að senda út eftirfarandi fréttatilkynningu: Hún Guðmunda okkar sem er ein af uppáhaldsvinkonum stelpnanna minna og þar af leiðandi heimagangur á Hólnum er búin að eignast stúlku. Hekla fæddist í gær, var víst stór og falleg með dökkt hár - mynd síðar.  Kristín segir að hún sé alveg ótrúlega falleg.

Mér finnst sérlega smekklegt að nefna hana Heklu. Það er mín reynsla að börn sem skírð eru eftir öflugum eldfjöllum séu sérlega yndisleg, sbr. Kötlu.  Svo eru Guðmunda og Kristín stofnendur og virk meðleg í Heklunum sem er dúndurhópur ungra kvenna.  Læt fljóta með myndir af dúettinum "Hryssan/Gussan", og svo af súperfyrirsætunni Guðmundu sem fékk kjötsúpu fyrir að setja á sig hárkollur og láta mynda sig í Stígamótaauglýsingu sem var valin auglýsing ársins.  Auglýsingin er nú um alla Danmörku og er notuð sem forsíða á bók um mansal í Búlgaríu.  Nú er þessi kjarnorkukona komin í enn eitt hlutverkið að mæðra litla Heklu. Hjartanlega til hamingju elsku Guðmunda og Sigurgeir.

 

 

 


Mikið rosalega er ég í skemmtilegri vinnu!

Verð bara að festa þessa fyrirsögn á prent! Vinn á svooooooooooo skemmtilegum stað og er að fást við svooooooooooo skemmtilegt verkefni þessa dagana!


Stelpurnar mínar

IMG_2500IMG_2502

Þessar stelpur á ég!


Hún á afmæli hún Sóley!

1974 brúðkaup Guðrún og Tommi Sóley (1)1977 í Fljótstungu Sóley og TommiIMG_0162pólitíkusarnir

Það eru akkúrat 33 ár síðan það varð bylting í lífi mínu.  Ég varð mamma og hef ekki verið söm síðan. Ég rifja upp þennan atburð a.m.k. árlega og hlýnar alltaf um hjartað.  Sóleyjan mín hefur alltaf verið mikið afmælismanneskja, einstakt Eurovisionfan og hápólitísk.  Dagurinn í dag er  því þríheilagur hjá þessari kjarnorkukonu.   Vonandi mun gleði hennar vara framyfir talningu atkvæða í nótt.

Til hamingju með daginn Sóleyjan mín!

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband