Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Um sveitir Indlands og Taj Mahal...

17.12.07Ferðaáætlunin um Rajasthan er klár Ég ætla að viðurkenna það sjálfri mér til skelfingar að ég hef neitað að hjálpa stórslösuðum manni, handalausum manni, slatta af fótalausum mönnum og óendanlegum fjölda af fátækum svöngum og köldum börnum, sum sum hver eru mun yngri en Tommsinn minn.  Svona er ég orðin aðlöguð =  harðsvíruð.  Það er engin leið að bregðast við öllum þeim áreitum sem við verðum fyrir hér, mér hefur dottið í hug öðru hverju að fá Unichef á Íslandi í lið með mér og kippa til mín þessum börnum, en veit að það er ekki svona einfalt.  Í ferðabókum og bæklingum er fólk beðið um að gefa ekki betlurum, heldur styrkja samtök sem nýtast fjöldanum. Hljómar gáfulega, en hér eru engin samtök búin að gefa sig fram við mig og ég sé ekki að þau séu að hjálpa og mér líður ekki vel með ástandið. En er búin að  mynda skæni af skel sjálfri mér til varnar.   Ég er búin að engjast yfir því að við munum ekki komast yfir alllt sem í boði er hér á Indlandi á 12 dögum.  Var að spá hvort við myndum ná 18 daga  ferð Sóleyjar systur ef við spýttum í...........  eða hvort við ættum að ná Vasivira eða fara upp í Himalaya eða allt þetta.  Það er nokkuð einkennandi fyrir okkur hjónin að þeysast áfram  til þess að sjá  sem allra  mest, en verandi á Indlandi er ómögulegt að komast yfir nema örlítið sýnishorn.  Við  erum þess vegna búin að ákveða að taka því rólega og njóta þess sem við skoðum og taka góðan tíma.  Muna að við erum í fríi en ekki í akkorði. 
Við vorum að ganga frá samningi við bílaleigufyrirtæki  sem ætlar að senda til okkar bíl og einkabílstjóra kl. 7.30 í fyrramálið.  Bílstjórinn mun keyra með okkur til Agra til þess að skoða  Taj Mahal og svo áfram í þjóðgarðinn Keoladeo Gahna sem jafnframt er fuglaparadís.  Þar ætlum við að halda  til í tvo daga og færa okkur svo yfir í annan  þjóðgarðRanthambhore þar sem eru tígrisdýr og fleira skemmtilegt.  Svo  förum við Jaipur og verðum þar í tvær
nætur og komum aftur til Dehli þann 24. desember.  Þetta eru ekki nema um þúsund kílómetrar ef við skiptum ekki um skoðun.  Hvílíkur léttir að vera loksins búin að gera grófa ferðaáætlun.  Hvað er það að þeystast um Evrópu miðað við það að átta sig á indversku samfélagi. Við vorum að ganga frá samningi við bílaleigufyrirtæki  sem ætlar að senda til okkar bíl og einkabílstjóra kl. 7.30 í fyrramálið.   18. desember 2007 Taj Mahal og Rajasthan  
Lögðum af stað í ævintýraferðina snemma í morgun.  Til okkar kom ákaflega þægilegur maður á ákaflega þægilegum bíl og hann kallar okkur Sir og madam hummmmmmmm,   ekki alveg stíllinn okkar.  Maðurinn ætlar að vera okkur til aðstoðar í heila viku.  Það er ótrúlegur léttir að þurfa ekki að velta fyrir sér lestum, rútum, leigubílum og leiðum heldur njóta þess bara að fá aðstoð. Líklega er alskemmtilegast bara að keyra um sveitirnar hérna og fylgjast með iðandi mannlífinu.  Á götunum eru bílar, hestar, hjólakerrur, beljur, geitur, apar, einn úlvaldi, reiðhjól og fullt af gangandi fólki.  Við fórum til Agra og skoðuðum Taj Mahal eins og allir aðrir.  Verulega fallegt  Svo skoðuðum við Agravirkið og skelltum
okkur svo inn á hótelið Bagh sem er gamall herragarður, í sama stíl og Taj Mahal.  Ákváðum að hvíla okkur á áreitinu og vera á þægilegum stað. Ég hef aldrei verið á fínna eða fallegra  hóteli..........Í fyrramálið ætlum við í fuglagarðinn..................  

Okkar eigin “Passage to India”

Sunnudagurinn 15.des. 07

 IMG_0275Þegar við yfirgáfum Kathmandu var ég viss um að það hefði verið gert hreinsunarátak í borginni.  Það var búið að moka upp heilmiklu af ruslahaugum.  Ég hafði lesið um það í Napali news að vegna einhvers konar lömunar í stjórnkerfinu hefði ruslið verið látið liggja.  Tommi fullyrðir að borgin hafi ekki breyst, heldur hafi ég sjóast.  Ég held ekki.  Fannst samt gott að fara frá Nepal í sólskini og veifaði til tignarlegra Himalaya fjalla á leiðinni út völl.   Við hengum svo á flugvellinum í sex tíma áður en við komumst í loftið. Dagsverkið fólst í því einu að koma okkur hingað á Icon Villa hótelið í Nýju Dehli.  Hótelið er ekki langt frá flugvellinum, svo við vitum ekki hvað bíður okkar.  Búin að panta mat á herbergið og ætlum að upplifa okkar eigin einka útgáfu af þessu dulúðuga og yfirþyrmandi landi.  Hlökkum mikið til, en erum líka dálítið kvíðin vegna framandleikans.    

Mánudagurinn 16. des. 07

Dehli 

Sit enn á herberginu okkar og reyni að setja mig inn í menningarmuninn á milli samskipta á Íslandi og hér á Indlandi.  Lonely Planet hefur verið ómetnalegur stuðningur og hefur bjargað okkur frá alls kyns gildrum sem við hefðum getað lent í.  Ergilegt en ögrandi að geta ekki bara slappað af og notið nýrra aðstæðna.  Það voru gerðar nokkrar tilraunir til þess að svindla á okkur á flugvellinum og á leiðinni á hótelið.  Hótelið sem Lonely planet hafði mælt með kostaði mun meira en bókin sagði til um og þeir buðu okkur að láta sækja okkur á flugvöllinn fyrir 1450 kr. Leigubíllinn sem við tókum ein og sjálf kostaði hins vegar bara 265 kr.  Þar af leiðandi veit ég að við getum ekki beðið hótelið um að útvega bíl og bílstjóra til þess að skoða borgina, án þess að borga fyrir það margfalt verð.  Sem betur fer mælir bókin með ákveðnum bílaleigum og ferðaskrifstofum.  Best að fara að setja sig inn í það.....  Það verður spennandi að vita hvort upplifunin af Kathmandu hafi ekki verið góður undirbúningur fyrir Dehli........... hver veit?    

Um kvöldið: IMG_0292IMG_0294Eitthvert gáfumennið sagði einhverju sinni að eftir eina viku á nýjum stað væri hægt að skrifa um staðinn heila bók, eftir mánuð væri hægt að skrifa einn kafla um staðinn, eftir eitt ár aðeins formála að bók.  Gáfulegt, en samt eru fyrstu kynni mikilvæg.

Kathmandu var frábær undirbúningur fyrir Indland....  Höfum auðvitað bara verið hér í einn dag, en héru falleg stræti, garðar, ótrúlegar byggingar, fullt af fólki sem hefur það ágætt og margt fólk sem býr við hræðilega eymd.  Ætluðum á Tourist Information og vorum stórhneyksluð á því að hún var lokuð, þrátt fyrir að það stæði á hurðinni að hún ætti að vera  opin alla virka daga. 

Skelltum  okkur þá inn í Gömlu Dehli, þar var ótrúlegt mannhaf........ fannst öll íslenska þjóðin geta verið með nokkra sölubása á  markaðnum....... Skoðuðum Rauða virkið......... svakalegt mannvirki sem talið er vera teiknað af  sama arkitekt og Thaj Mahal.  Skildum ekkert í því að fólk streymdi inn í virkið þó það stæði skýrum stöfum að það væri lokað á mánudögum.  Spurði meira að segja einn vörðinn hvort það væri ekki örugglega lokað á mánudögum og hann játti því ákveðinn á svip en samt streymdi fólkið áfram.  Þóttumst hafa lært að á Indlandi væri ekkert að marka tímasetningar – þar til við sáum í sjónvarpinu áðan að það er sunnudagur í dag.  Erum sannarlega komin í alvöru frí þegar við erum hægt að vita hvaða dagur er. 


Nokkrar myndir frá Nepal.......

Hér kemur fyrst mynd frá ungbarnadeildinni í Maiti athvarfinu í Kathmandu.  Næsta mynd er tekin á leiðinni í Chitwan þjóðgarðinn.  Síðasti vegarspottinn var torsýnilegur og bílferðin endaði þarna.  Við hjónin vorum ein á ferð og ferjumaðurinn fór með okkur yfir ána í gamla bátnum sínum.  Á næstu mynd erum við fílamaðurinn að leggja í hann og svo eru einhyrndir nashyrningar.  Virka forsöguleg dýr, en eru hættulaus - þegar ferðast er um á  fílum.   IMG_0057IMG_0100IMG_0164IMG_0115

Og áfram blogga foreldrar mínir frá Nepal...

 

Mamma bað mig um að setja inn þessa færslu. Netið í Nepal er eitthvað að stríða þeim. Bendi áhugasömum á að Pabbi hefur líka sett inn færslu um ferðina á www.tommijons.blog.is.

Kveðja Kristín,

Hér kemur færslan:

Föstudagurinn 13.12.07
Rólegheit og heimsókn í apamusterið - Swayambhunath

Ég er að ná mér eftir overdosis af Asíu. Tók það rólega fyrir hádegi og ákvað að ná
stjórn á lífi mínu aftur. Tommi fór út um morguninn og kom aftur alsæll yfir því að
hann væri búinn að finna ruslahaugafría leið inn í Tamel – gamla bæinn.
Umhyggjusamur að vanda.

Ég skrifaði dagbók og svo lögðum við ferðafélagarnir af stað til þess að upplifa
Kathmandu með opnum huga. Við fórum ruslahaugafríu leiðina og ég tilkynnti að nú
væri ég orðin yfirveguð og róleg og ætlaði að mynda það sem fyrir augu bæri.
Sá tvo hálfdauða hunda rétt hjá hótelinu og ætlaði að mynda þá og þegar ég fór að
beita myndavélinni kom ég auga á feita, stóra og dauða rottu við hliðina á hundunum.
Náði mér furðu fljótt og við ráfuðum um miðbæinn. Fylgdum Lonely planet í blindni
og fengum okkur ágætis hádegisverð á stað sem heitir 1905. Ákváðum að skoða
apamusterið Swayambhunath sem er ótúlegt búddahof og eitthvert frægasta tákn
bæjarins. Þarna var fínt útsýni yfir bæinn og við áttum góða stund. Fórum svo heim
að hvíla okkur og komum inn á hótel um kl. fimm í rafmagnsleysi. Við drógum fram
Rúmfatalagersvasaljósið okkar og biðum í myrkrinu, fannst við ansi svona
fyrirhyggjusöm og gáfuleg. Hér kólnar ansi hratt eftir sólarlag og aðeins
rafmagnsofn til þess að hita herbergið. Við skriðum því undir þunnt teppi og biðum
eftir birtu og yl. – Náðuð þið þessum ágætu nánustu aðstandendur?

Það liðu um tveir tímar og við vorum búin að finna vararafhlöðurnar, klár í hvað sem
væri í myrkrinu. Við vorum orðin ansi köld og vorum alveg búin að fá nóg af þessu
skemmtiatriði. Einhverra hluta vegna slökknaði á vasaljósinu og við tókum eftir því
að það var ekki alveg dimmt úti. Þá hvarflaði að okkur að prófa að kveikja ljósið
og viti konur og menn! Það kom ljós. Vorum ekkert að spyrja starfsfólk hversu lengi
rafmagnsleysið hefði varað. Fórum út á fínasta stað í bænum og tókst að eyða þar um
3.500 krónum fyrir allt sem okkur datt í hug.


Föstudagurinn 14. des.
Kathmandudalurinn; Búddatrú, hindúismi og líkbrennsla

Ekkert heitt vatn í sturtu, en við höfðum alveg húmor fyrir því. Leigðum okkur bíl
og bílstjóra allan daginn fyrir heilar 1.870 kr. íslenskar. Um leið og við vorum
komin út úr Kathmandu varð allt umhverfið mun snyrtilegra. Ákváðum að pikka út það
besta úr nágrenni borgarinnar og byrjuðum í búddahofi þar sem flóttafólk frá Tíbet
gengur daglega í kringum hofið og þylur bænir. Merkilegt að sjá, fólk frá Tíbet er
miklu stærra og stórgerðara en nepalarnir. Hofið er réttilega á heimsminjaskrá.

Síðan fórum við að skoða Phashupatinath hofið sem stendur við hina heilögu Bagmatiá.
– Við komumst aldrei til þess að skoða hofið. Á leiðinni gengum við framhjá
líkbrennslustað hindúa og – Nú er rafmagnið farið aftur –

Við reyndum að sýna fulla virðingu, en ég verð að viðurkenna að við gláptum eins og
hitt fólkið. Þarna fylgdumst við með því þegar heil líkfylgd kom með lítið barnslík
og gátum ekki slitið okkur frá því að fylgjast með allri athöfninni sem var
íburðarmikil. Sáum engan gráta. Hindúar virðast hafa mikið vald á tilfinningum
sínum. Við sáum fimm fullorðna karla koma með lík vafið inn í léreft, hlaða
bálköst, afklæða líkið inni í léreftsklæðinu, bera það að vatnsborðinu og stökkva á
það heilögu vatni úr ánni, fletta dúknum af andlitinu og bera eld að því, svo stóð
líkið í björtu báli. Fátækir karlar, en falleg athöfn og mikil virðing. Jahérna
hér! Merkileg innsýn í líf bæði búddatrúarfólks og hindúa á einum degi. Eyddum mun
lengri tíma en áætlað var í þessa fræðslu og enduðum í Bhaktapur á Dunbar torginu
þeirra sem er ótrúlegt samsafn mustera og hofa. Þar fundum við að við vorum gegnum
reykt frá líkbrennslunni og lungun orðin svört. Vorum orðin mettuð af öllu því sem
við höfðum séð um daginn og settumst að snæðingi úti í sólinni. Reyndum að muna
hvernig veðráttan er á Íslandinu góða á þessum árstíma, en það var ekki einfalt.

Fór að velta því fyrir mér hvað við erum orðin aftengd lífhringnum. Við fáum
útfararþjónustur til þess að sjá um allt það praktíska þegar við kveðjum ástvini í
stað þess að klára málið sjálf. Í dag finnst mér það gæti verið eðlilegur og
fallegur þáttur í sorgarferlinu að kveikja bara sjálf í fólkinu okkar og dusta svo
öskunni út í náttúruna. Úff.......

Nú finnst mér ég vara búin að læra ýmislegt. – virði mörkin mín og leigi bíla fremur
en að klofa yfir ruslahauga. Matast á fínustu veitingastöðunum þeirra og það kostar
minna en að kaupa í matinn heima. Ber á okkur flugnaeitur og svo gleypum við
malaríutöflur og göngum um með bakteríudrepandi gel sem er mun nauðsynlegra en ég
gerði mér grein fyrir. Takk Sóley systir, skynsemi þín hefur aldrei brugðist mér.
Lonely planet er á flestan hátt biblía, má þó bæta slatta við allt verð sem þar er
gefið upp. Held að við séum að verða klár í Indland, fljúgum þangað á morgun.

 


Dagbok fram ad tessu, myndir sidar.........

Fimmtudagurinn 6.12.2007

Ísland - London - Bahrein

 

Loksins, loksins lögum við af stað í ævintýrið mikla til framandi landa.  Stoppuðum í London í tíu tíma, keyptum okkur það sem vantaði af flugnafælugræjum og lékum okkur.  Flugum til Bahrein við Persaflóann, biðum þar í fjóra tíma og lögðum svo í hann til Nepal.  Vorum á flugi í 13 tíma, ferðalagið allt tók einn og hálfan sólarhring.

 

 

Föstudagurinn 7. 12.2007

Nepal

 

Lentum í Kathmandu í Nepal í gærkvöldi og var keyrð á 5 stjörnu hótel í myrkraðri borg.  Vorum sótt af starfsfólki hótelsins Yin og Yaki.  Hér eru engin götuljós og það sem við sáum í bílljósunum og í illa upplýstum vistarverum fólks var sjokkerandi.  Því miður, þá á ég engin orðin orð.  Þóttist vera búin að undirbúa mig eins og hægt var, en samt.   Það var fólk alls staðar að ferðast um í myrkrinu. Fólk sem virtist vera að reyna að selja öðrum innfæddum eitthvað smávegis.  Eitthvað sem líklega kallast veitingastaðir hér.  Fólk sem sat á hækjum sér og virtist vera að elda eða hlýja sér á við eld í vegarkantinum – úti á götu. Í ruslinu, einhvers konar ruslahaugum alls staðar.   Datt bara í hug orðið dýrslegar aðstæður, eitthvað sem mig langar ekki að fólk búi við.   Fengum okkur að borða á hótelinu og duttum strax útaf á hótelinu eftir 36 tíma ferðalag.

 

 

Laugardagur 8. 12. 07

Equality Now

 

Hafi ég gleymt að segja einhverjum það, þá get ég sagt það núna; mikið skelfing þykir mér vænt um “vinnuna” mína.  Ég veit ekki ennþá hvernig Equality now uppgötvaði Stígamót, en hér eru samankomnar 9 konur sem hafa hlotið viðurkenningu þessara virtu alþjóðasamtaka ásamt stjórn samtakanna og sérstökum gestum.  Mér til mikillar ánægju hafa  Marta samtökin í Lettlandi líka hlotið styrk sem níundu samtökin svo hér hitti ég Ilutu Lace vinkonu mína.  Hér er líka Colette deTroy sem er framkvæmdastýra ofbeldisdeildar European Women´s Lobby og ágæt vinkona mín í gegnum sameiginleg verkefni undanfarinna ára.  Hún situr í stjórn Equality Now, en ég veit frá sameiginlegri vinkonu að það var ekki hún sem tilnefndi Stígamót. 

 

“Sérstöku gestirnir” voru tvær konur, ég hélt að önnur þeirra yrði Maryl Streep sem hefur gjarnan kynnt samtökin, en sjálf hef ég aldrei fallið fyrir stjörnum vegna þess að þær séu stjörnur.  Gestirnir komu of seint vegna seinkunnar á flugi og okkur var sagt að það væri mikilvægt að gestirnir heyrðu framsögur okkar, svo að þær skildu að Equality now hefðu smekk fyrir almennilegum feministum.

 

Það kom í ljós að önnur “gestanna” var Gloria  Steinem hin heitir Bonnie Schaefer.  Fyrir mig var það að hitta Gloriu sambærilegt við það að Tommsinn minn, litli dóttursonur minn, hitti spiderman.  Ég hefði aldrei trúað því að ég ætti  eftir að hitta hana.  Ég vandaði mig eins og ég gat  óvenju þurr í hálsinum  og hugsaði mér að samstarfskonur mínar á Stígamótum hefðu raðað sér í kringum mig og “Kristín” sæti á öxlinni á mér og sagði frá starfi Stígamóta gegn mansali.   Held – veit – að mér gekk vel og fékk að heyra það mörgum sinnum.

 

Hinn “gesturinn”Bonnie Schaefer olli hins vegar andköfum hinna kvennanna og þær stóðu upp þegar þær heilsuðu henni.  Við fengum að vita að hún væri megin styrkveitandinn og hefði practically stofnað mansalssjóðinn með auði sínum.  Hún væri vinkona Gloríu. Hún settist við hliðina á mér og með henni voru nokkrar aðstoðarkonur sem settust í skuggann.  Það var alveg magnað að sitja í svo þröngum alþjóðlegum hópi kvenna sem allar eru að fást við ljótustu hliðar alþjóðavæðingarinnar.  Hversu snöggar við erum alltaf að tengjast og fara að tala sama alþjóðamálið.  Bonnie –hafði mikinn áhuga fyrir Stígamótum og hætti ekki að spyrja mig um áhrifamikið starf okkar.

               

Gloria mundi eftir Möllu heitinni Scram frá því hún var í viðtali í Ms og sagði að þegar bandarískir feministar ræddu um fyrirmyndarríkið þá væri það Ísland! – “Because of the feminist party”  Ég þandi brjóstkassann í þúsundasta skipti yfir Kvennalistanum og Stígamótum.  Það var eins og hún hefði setið löngum stundum við eldhúsborðið á Stígó, svo áhugasöm var hún og svo mikla þekkingu hafði hún á því sem við erum að fást við.

 

Ég sýndi þessum nýja vinkonuhópi mínum stígamótanærbuxurnar og þær vöktu ótrúlega athygli.  Stelpur, minnið mig á að við þurfum að framleiða þær með enskum texta fyrir New York ævintýrið okkar!

 

Fórum út að borða saman og á morgun munum við heimsækja systursamtök okkar hér í Kathmandu.  Hér er staddur eiginmaður minn elskulegur og hann er upptekin af Nepalsku samfélagi sem ég á eftir að upplifa með honum.  Hvílík upplifun.

 

 

Sunnudagur 9.12.07

Samstarf og Maiti athvarfið

 

Fyrri hluta dagsins notuðum við til þess að leggja á ráðin um framtíðarsamstarf okkar.  Hvernig við gætum komið til skila þeim skilningi sem við höfum á tengslum klámiðnaðar og ofbeldis og varð nokkuð ágengt.  M.a. var rætt um hversu orð væru stundum vandmeðfarin.   Það  var verið að velkjast með það að customer eða client væru slæm orð yfir kaupendur vændis.  Ég benti á að erfitt væri að selja hugmyndina um að refsa “viðskiptavinum” eða “kaupendum”.  Hljóma svo vingjarnlega.  En þar sem við vorum allar sammála um að vændi væri ofbeldi, skildi farið með það sem slíkt.  Á sambærilegan hátt og farið er með nauðganir og annað ofbeldi.  Okkur væri tamt að tala um perpetrators eða ofbeldismenn í því samhengi.  Hið rétta væri auðvitað að þeir sem kaupa sér kynferðislegan aðgang að konum eru ofbeldismenn.  Ef við notum rétta orðið yfir þá, ætti að vera auðveldara að koma yfir þá lögum.  Þetta féllust þær á, en spurningin er hvort konur hafi kjark til þess að kalla alla þá karla ofbeldismenn sem kaupa sér konur. 

 

 

Maiti Nepal athvarfið

 

Eftir hádegi fórum við í heimsókn í  Maiti athvarfið í Kathmandu.  Ég skrifaði um það inn á heimasíðu Stígamóta.  Í rútu á leiðinni þangað tók Bonnie orðið og sagði að það yrði að tryggja að þessi hópur gæti haldið áfram að vinna saman.  Hún sagðist því hafa ákveðið að bjóða okkur öllum heim til sín í nóvember á næsta ári.  Hún ætlaði að greiða flug og allan kostnað og við gætum bara búið heima hjá henni.  Mér skilst að hún eigi heilsurækt sem valin hefur verið sú besta í Bandaríkjunum eða heiminum eða eitthvað......Heimsóknin í Maiti athvarfið var gífurlega áhrifamikil.  Bæði að fara inn á ungbarnadeildina þar sem ég sá m.a. tveggja daga gamalt barn sem hafði verið skilið eftir á götunni.  Ég varð að ganga út af ungbarnadeildinni, ég bara brotnaði saman þegar ég leit yfir heilan skóg af ungbarnarúmum – sumum með tveimur börnum í.  Tók mig svo saman í andlitinu og fór inn til barnanna.  Mér fannst ég bara lamast.  Mig langaði að taka þau öll að mér, hvert eitt og einasta og fannst ég algjörlega máttvana að horfast í augu við þau. - Datt í hug Díana vinkona mín.

 

Í athvarfinu búa á milli 3-400 börn og ungar konur.  Mörg hver með eyðni og stúlkunum hefur verið bjargað úr vændishúsum – oft á Indlandi.  Þarna var nægilegt húsnæði, allt hreint og óeðlilega snyrtilegt. Börnin svo öguð að mér var ekki alveg sama, en þau hafa mat og húsaskjól og þau ganga í skóla og þau eiga þarna athvarf þar til þau eru orðin fjárhagslega fær um að standa undir sér.  Eftir menningardagskrá þar sem börnin sungu og dönsuðu og fögnuðu gestunum var okkur boðið inn í fundarsal þar sem níu ungar konur sátu.  Þær voru á aldrinum 13-20 ára og höfðu allar verið seldar mansali.  Við máttum spyrja þær að vild.  Lýsingarnar á ofbeldi og pyntingum og hræðilegri meðferð voru svakalegar. Ein var algjörlega steinrunnin, það var stutt síðan hún náðist. Ein var illa bækluð því hún bjargaði sér með því að stökkva út um glugga á þriðju hæð.  Okkur var boðið inn á sjúkrastofu til stúlku sem var lömuð eftir pyntingar.  Þær vissu allar að við vorum að vinna í hliðstæðum málum og voru opnar um það sem þær höfðu upplifað.  Þær treysta engum, þær eru útskúfaðar frá fjölskyldum sínum þar sem þær eru smitaðar og þær vita að þeirra bíður bara hægur dauði.  Mér fannst þær þó hafa mikinn styrk af hverri annarri – kunnuglegt frá Stígamótum.  Ég gat ekki sofið um nóttina yfir þessari heimsókn, en daginn eftir byrjaði ævintýrið okkar Tomma.

 

 

Mánudagurinn 10.12.07

Chitwan þjóðgarðurinn

 

Við vorum svo heppin að ein úr hópnum sem ég kynntist var að koma úr þjóðgarðinum og ég bað um alveg eins ferð.  Við flugum til Bahratpur.  Þar beið okkar maður sem keyrði okkur í einn og hálfan tíma um sveitir Nepal. Við vorum með hökuna niður á maga allan tímann, það var svo merkilegt að sjá lífið meðfram þjóðveginum.  Alls staðar allir að vinna heima, í örlitlum garðskikum, með eina belju eða geit, safna eldiviði, þvo þvott á hækjum sér úr örlitlu vatni, hreinsa hálm til þess að dytta að húskofum.  Víða konur á hækjum sér við opinn eld að elda.   Margir að reyna að selja einhverjum eitthvað smávegis,. Lagerinn gat verið 20 tyggjópakkar, korn, mandarínur eða annað smálegt.  Á leiðinni keyrðum við framhjá rosalegu umferðarslysi þar sem tveir trukkar höfðu smullið saman í klessu, augljóslega réttáður.  Ég get ekki ímyndað mér að bílstjórarnir hafi lifað þetta af – það stóðu menn hjá og voru að hringja. Bílstjórinn okkar keyrði framhjá og ég viðurkenni að ég var fegin.  Gat ekki hugsað mér að horfa á hryllinginn. 

 

Bíllinn keyrði inn á sveitaveg sem sumstaðar var illgreinanlegur.  Krakkarnir allir vinkuðu og brostu til okkar, sumir hlupu á eftir bílnum.  Svo keyrðum við niður að á þar sem okkar beið lítill  trébátur ábyggilega hundrað ára og ferjumaður til þess að flytja  okkur yfir í þjóðgarðinn.  Hvergi nein byggð eða merki um fólk, bara frumskógur.  Áin var breið og tiltölulega lygn og ég vissi að í henni eru tvenns konar krókudílar.  Þessir fáséðu sem eru í útrýmingarhættu og éta bara fisk og svo hinir sem éta hvað sem að kjafti kemur.   Bátsferðin var unaðsleg.  Kyrrðin og fegurðin og róin voru svo heilandi eftir áreiti undanfarinna daga að ég hefði getað setið þarna til eilífðar.  Árbakkanum hinum megin tóku tveir menn á móti okkur í litlum kofa og færðu okkur ávaxtadrykk og blessuðu okkur með því að setja rauðan lit á ennið á okkur og annar þeirra keyrði okkur svo í opnum jeppa að Tiger Temple.  Mér fannst unaðslegt að við vorum bara tvö og hversu notalegir Nepalarnir voru við okkur.  Á leiðinni sáum við bæði apa og dádýr. 

 

Í Chitwan þjóðgarðinum ku vera nokkrir ferðamannastaðir sem bjóða upp á fílsferðir um skóginn.  Vegna Maóista sem hafa stundað hryðjuverk, dráp og rán undanfarin ár hefur ferðamannastraumurinn hrunið og staðirnir hafa margir lokað eða hafa takmarkað umsvifin.  Þar sem við vorum voru um 30 lítil bjálkahús, opið eldstæði og matsalur. Alls staðar fallegt, tré, bast og stráþök.  Við fengum lítinn kofa með öllum þægindum, m.a. hitapoka í rúmið á kvöldin þegar fór að kólna og allt varð vott af dögg. 

 

Við komuna var okkur gefið að borða og svo vorum við drifin í fyrstu fílaferðina.  Í það skiptið var farið á tveimur fílum – fimm á hverjum fíl.  Unaðsleg og vinaleg dýr. Er hægt að hugsa sér eitthvað notalegra en að ferðast í rólegheitunum á fíl um svæði sem erfitt er að komast um öðru vísi.  Það var alltaf steinhljóð í þessum ferðum til þess að fæla ekki dýr.  Í ferðinni sáum við fullt af nashyrningum, apa og dádýr.  Einhyrndi nashyrningurinn ku drepa fleira fólk en önnur dýr, en hann er í útrýmingarhættu og í garðinum eru nú líkllega 372 dýr.  Okkur var sagt að Georg bretakóngur og annað breskt kóngafólk hefði slátrað tígrisdýrum og nashyrningum þannig að stofnarnir hafa ekki náð sér eftir það. 

 

Um kvöldið var boðið upp á myndasýningu og fróðleik og okkur harðbannað að hreyfa okkur út úr húsi án fylgdar.  Á svæðinu eru talin vera 102 tígrisdýr og í júní í ár réðst tígrisdýr að einum starfsmanni Tiger Temple, einmitt þarna þar sem við vorum og drap hann.  Allir voru slegnir yfir þessu, en fólk gat ekki lagt upp laupana.  Afkoman var í húfi.

Einn leiðsögumaðurinn sagði okkur Tomma í hálfum hljóðum að það hefði verið kollegi sinn Alexander sem var á leið til vinnu í svartamyrkri  kl. 6 að morgni.  Tígrisdýrið beið hans utan við kofann, reif af honum hausinn og skildi eftir, át af honum lærið og fór með restina upp í tré. 

 

 

Þriðjudagurinn 11.12.07

Fílar, bátsferð og e.t.v. tígrisdýr??

 

Daginn eftir fórum við Tommi ein í leiðangur með leiðsögumanni, ásamt fílamanninum sem stjórnaði fílnum.  Við fórum í tveggja tíma reiðtúr, m.a. um fílagras sem er um 8 metra hátt – góður felustaður fyrir tígrisdýr - og enduðum á árbakkanum langt ofan við staðinn sem við lögðum upp frá.  Þar biðu tveir fiskimenn eftir okkur í örlitla trébátnum sínum.  Berfættir og brosandi.  Við fórum um borð og þeir sigldu með okkur niður ána.  Kyrrðin og þögnin engu lík, sami ferðamáti og fólk hefur notað hér um aldir.   Við sigldum í klukkutíma og sáum nokkra litla hópa af fiskimönnum á holum eintrjáningum og með einföld net að veiða.  Sumstaðar voru kona og karl saman á þessum litu holuðu trjábútum innan um krókodílana. Við sáum einn af þessum sjaldgæfu fiskétandi, hvíla sig á árbakkanum.  Skrýtið dýr með örmjótt og langt trýni. Konurnar í fallega litum sahri.  Þetta er neaura fólk sem hefur lifað við óbreyttar aðstæður frá ómunatíð.  Býr í litum strákofum með opin eldstæði undir berum himni. 

 

Seinna um daginn var boðið uppá “nature walk”.  Við fórum með leiðsögumanninum gangandi inn í skóginn.  Skynsemin sagði mér að þetta  væri óðs manns æði, en jafnframt var þetta óhemju spennandi.  Einu vopnin sem við höfðum voru tréstafir.  Með okkur fóru 6 aðrir ferðamenn og mér fannst gott að vera  hjarðdýr.  Bara 2/9 líkur á að tígrisdýr myndi velja mig eða Tomma.  Held samt að tígrisdýri myndi þykja ég girnileg bráð.  Á tveimur stöðum sáum við tígrisdýraspor.  Á öðrum staðnum var um gamalt dýr að ræða.  Veit ekki af hverju, en ég var ekki hrædd.  Mér  fannst þetta bara spennandi og vonaði og vonaði samt ekki að við myndum rekast á tígrisdýr.  Ef við mættum  tígrisdýri var um að gera að hlaupa ekki af stað heldur horfast í augu við það og bakka rólega.  Okkur var sagt að ef við finndum nashyrning ættum við að kasta okkur ofan í holu ef við fyndum einhverja.  Annars ættum við að henda einhverju í áttina að þeim t.d. fötum, fela okkur á bak við tré eða hlaupa sik sakk undan þeim.  Við sáum fullt af alls kyns dýrasporum bæði eftir nashyrninga, dádýr, sjakala, býsonuxa og ýmislegt fleira.  Dásamleg ferð. 

 

 

Miðvikudagurinn 12.10.07

 

Í myrkri frumskógarins

 

Á þriðja degi sem var burtfarardagur vorum við Tommi vakin kl. 5.30 með kaffi í rúmið. Síðan fórum við tvö með fílamanni í kolniðamyrkri af stað út í frumskóginn.  Okkur var fylgt frá kofadyrunum og þar til við vorum komin upp á fílinn.  Þeir hafa ekki efni á að láta éta fyrir sér ferðamenn.  Í byrjun sá ég ekki handaskil en svo upplifðum við dögunina úti í þéttum skóginum.  Ólýsanleg reynsla.  Síðan fórum við aftur til Kathmandu – dálítið óróleg þar sem við höfum ekki pantað hótel.  Við settum undir okkur hausinn og ákváðum að treysta bara Lonely planet og létum  keyra okkur á þann stað sem þeir mæla með hér í bæ. Fengum snyrtilegt herbergi fyrir hlægilegan pening og ætlum að gista hér þar til við förum til Indlands.  Fara dagsferðir út úr borginni. 

 

Kathmandu

 

Af hverju hefur enginn skrifað um það í Lonely planet eða í öðrum bókum um þennan stað að borgin er einn samfelldur ruslahaugur?  Í alvöru.  Öllu rusli er hent út á götu og þar er það.  Sumstaðar eru næstum mannhæðarháir haugar og ég þarf að hafa mig alla við að panikera ekki.  Ég hata rottur og mýs og ég veit að hér er allt morandi og ég næ ekki að slappa af, glápandi upp í loftið til þess að forðast að sjá....  Hér sáum við dauðan- alla vega meðvitundarlausan - mann á götu í gær með hausinn á grúfu í götuna.  Við vorum sammála um að líklega væri hann dáinn, bara svona innan um hitt fólkið. Tvo hunda deyjandi, e.t.v. með hundaæði, lítinn koldrullugan krakka berrassaðan með betlandi móður á götuhorni í kuldanum, ekki eins árs, holdsveikt fólk og rusl, rusl, rusl og bíla sem keyra á flautunni ég fékk sjokkið í gær.  Gat ekki meira og fór næstum að gráta. Tommi skildi mig ekki, hann var búinn að vera að kanna borgina í tvo daga þegar ég var á fundum og var orðinn sjóaðari.  Heimtaði að komast inn á hótel í leigubíl,strax......  Hvernig er hægt að ganga framhjá börnum í þessari aðstöðu og á hinn bóginn hvernig er hægt að hjálpa þeim öllum.  Það skall á mér hversu lífsbaráttan getur verið miskunarlaus.  Ég fylltist fullkomnum vanmætti, það geri ég ekki oft og það er andstyggileg tilfinning.  

 

 

Fimmtudagurinn 13.12.07

 

Ég er enn að jafna mig eftir menningarsjokkið í gær.  Tommi fór út í bæ að skoða útivistarbúðirnar.  Þær eru fullar af Nepölskum eftirlíkingum af merkjafatnaði fyrir 1/10 af vestrænu verði.  Mér finnst ég vera komin með blýeitrun í lungum af gífurlegri menguninni hérna. 


Það virðist ekki vera neitt að stjórnborðinu!

Halló Nepal!

Ég komst inná stjórnborðið á sama hátt og þú átt að komast inná það! Er ekki bara vandamálið að þú ert í Nepal, þar sem stjórnborðin á mbl bloggum virka ekki eins og á Íslandi? Gæti verið.

Allt gott að frétta héðan. Jólaskemmtun hjá Tomma í gær á Mýri, Anna fer í jólafrí 20.des (og sóley líka).  Katla biður stöðugt um að fá að tala við uppáhalds frænku sína, KÍKÍ, í símann. 

Ég er búin að sanka að mér sólarlandafötum héðan og þaðan. Árni hennar Lilju lánaði Garðari stuttbuxur.  Sólarvörnin komin ofan í tösku og ég er búin að klippa mig stutt svo hárið verði ekki fyrir mér í slökuninni. 6 dagar í brottför.

Ég er fegin að þið sáuð ekki tígrisdýr. Er ykkur ekkert illt í rassinum eftir físlbakið? Hefuru getað notað Ipotinn eða ertu farin að nöldra um að hann sé ónýtur? (ef svo er, athugaðu þá með hold-takkann ofan á i-potinum ef þú sérð glitta í appelsínugulann lit þá skaltu færa holdtakkann) .Ef þú kemst ekki inná stjórnborðið, prófiði þá stjórnborðið inná bloggið hjá pabba. Ef þið komist ekki heldur inn þar þá er vandamálið hjá ykkur. Hér heima virkar bloggið fínt.

Fariði varlega!!!

Kossar,

Krissa HryssaCool

 

 

 

 


A leid i Chitwan

Svef ekki i nott eftir ad hafa hitt stulkur i gaer nykomnar fra helviti.  Helt eg vaeri svo sjoud.  Erum a flugvellinum a leid i thjodgardinn.  Tarf ad nota mikla orku til tess ad slappa af og bara taka inn thennan framandi heim. Her duga engin thau norm sem eg hef haft hingad til.  En eftir flug og bilferd mun eg fara a filsbak i dag. Get ekki bedid eftir thvi.  Vonandi, vonandi hitti eg spakt og gott tigrisdyr sem eg get horfst i augu vid. 

Meira sidar.

Gudrun


Dagur 3 i Nepal

Tar sem eg hef fram ad tessu verid i opinberum erindum her i Nepal, aetla eg ad skrifa um sidustu tvo daga a heimasidu Stigamota a www.stigamot.is.   Her laet eg bara vita af okkur Tomma. Vid hofum varla sest - fram ad tessu, en nu hefst okkar sameiginlega upplifun.  I fyrramalid fljugum vid i aleidis i Chitwan tjodgardinn. Verdum sott a flugvollinn og keyrd  i tvo tima inn i tjodgardinn tar sem vid munum gista i tvaer naetur og ferdast um a filum.  Okkur verdur ekki hleypt einum ut ur husi, tvi einn af  starfsmonnum The Tiger Temple- gistihusinu sem vid gistum i, var drepinn af tigrisdyri fyrir tveimur eda tremur manudum.  A tessu svaedi ku vera nokkud um maoista sem ganga um vopnadir og areita folk a tessum tima.  Vid komumst vaentanlega ekki i sima eda netsamband fyrr en 13 des, svo ekki hafa ahyggjur.  I dag sa eg dauda belju a gotunni og mikid af opum,  her er fataektin svo yfirtyrmandi ad rottu og musahraedsla min verdur einhvern veginn hjom eitt. Meira tann 13.

Mikid skelfing hofum vid tad gott a Islandi......Astarkvedjur Alfholshjonin

ps, ekki buin ad koma myndum inn a tolvuna, svo eg get ekki sett inn myndir alveg strax af taeknilegum astaedum. 


Lifsmark fra Nepal

Elskulega fjolskylda og adrir velunnendur.

Vid erum komin til Nepal, er ad fara ad stokkva inn a fund....... heil og frisk, meira sidar. Siminn virkar ekki, latidi mommu og pabba vita ad vid seum i lagi og ordlaus yfir tessum framandi heim.

 

astarkv. gj 


Nýir ábúendur á Álfhóli

IMG_3101Frá og með morgundeginum, setjast Biggi og Steinunn að á Álfhóli.  Núverandi húsráðendur eru að fara í loftið á leið til London - Bharin - Kathmandu í Nepal. 

Ferðalagið hefst með myndavélarkaupum í London og svo er hugmyndin að skrifa brot úr ferðasögu hér á þessum fámiðli fyrir fjölskylduna og okkur sjálf.

Við höfum ákveðið að sleppa jólunum ALVEG og sendum ekki árlega jólaskýrslu og kaupum engar jólagjafir.  Stimplum okkur svo aftur inn fyrir næstu jól. Við sendum því okkar bestu jólakveðjur til allra og óskir um frið og notalegheit yfir hátíðirnar.

Bless í bili

Guðrún og Tómas Asíufarar


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband