Dæturnar þenja vængina

Á Hólnum eru húsráðendur sérlega stolltir þessa dagana yfir dætrunum þremur sem reyndar eru flognar úr hreiðrinu.  Þær þenja nú vængina svo fallega að foreldrana hefði ekki órað fyrir því í sínum villtustu draumum.  Þær Sóley og Kristín fara á kostum á heimasíðum sínum í feminískum pælingum, sjá tengla til vinstri á síðunni.   Tók eftir því í sjónvarpinu í  gærkvöldi að Þóra sem ég hef alltaf haldið að væri ljósrit af meðaltali af föðurfjölskyldunni  sinni var eins og ljósrit af Kristínu systur. Hef aldrei tekið eftir því fyrr að hún líktist mínu fólki í útliti þó hún hefði húmor móður sinnar.  Get alveg lifað með það.  Hér koma myndir af þeim í aldursröð. Hvern hefði órað fyrir því að þessir sakleysingjar yrðu einhvern tíma svona sterkar og flottar konur?

1974 Sóley á Þingvöllum1980 skírn Bergþórs Heimirs Þóra (2) 1982 Kristín Tómasdóttir (2)

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst ég svo ljót á þessari mynd, þrátt fyrir að vera fallegast barnið ykkar eins og við vitum báðar! 

Kristín T (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 22:59

2 identicon

Huggun harmi gegn Kristín, ertu ekki ljótari en Sóley er á sinni mynd. 

Mamma, ætlaru að halda áfram í þessum stíl? Má ég gubba? 

Þóra (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 23:19

3 identicon

já það er svo sannanlega rétt Guðrún mín að þetta er flottar dætur - grannar, fallegar, húslegar, prúðar........................ bara grín, þið eruð auðvita flottastar Sóley, Þóra og Kristín enda eigið þið eina flottustu mömmuna í bænum.

En nóg af hóli - ég er hundleið á að linkarnir hér til vinstri virki ekki þýðir svo mikil vinna fyrir mig þegar ég er að lesa innlegg stelpnanna þriggja !!!! og koma svo,,, laga þetta hið snarast, plís stelpur því ég veit að eigandi síðunnar gerir það ekki.

kv. Día sem á sko líka stelpu ha ha ha gaman.

diana (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 23:23

4 identicon

Haha mér finnst þið æði. Er þetta annars Kristín með bollukinnarnar? Og Þóra, ég væri sko alveg til í að mamma væri með blogg sem væri helgað mér! Ekkert gubb-rugl.

Dagný Rut (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 23:56

5 Smámynd: Álfhóll

Búin að laga Díana - hjúkkitt að fjölskyldan er með áráttu sem gerir það að verkum að ég get loggað mig inn á allt sem þau eiga og krefst lykilorða...

Systur - ég var og er langfallegust af ykkur!

Mamma - hvað heldurðu að kommentagaurarnir á minni síðu segi um mig ef þeir sjá þessa færslu?

Álfhóll, 2.2.2007 kl. 00:56

6 Smámynd: Álfhóll

Iss láttu ekki svona mamma, Þóra og Sóley eru ekkert sérlega ófríðar þó svo að þú þurfir að hafa myndir af mér öskrandi svo að fegurðarmunurinn verði ekki svona áberandi!

Álfhóll, 2.2.2007 kl. 02:28

7 identicon

Eru til myndir af þér öðruvísi en öskrandi? -Mér þætti gaman að sjá hvernig þú lítur út við slíkar aðstæður...

Sóley Tómasdóttir (IP-tala skráð) 2.2.2007 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband