Nokkrir skottúrar bara......

Í páskafríinu skruppum við bara nokkra skottúra.  Hér koma svipmyndir: Við Kristín  systir gengum á Helgafell og vorum allt í einu komnar  í Hákot og þaðan er  mynd af þeim Kristjáni.  Svo fórum við í yndislega ferð austur  í sveit og Sóley systir  og Pétur komu með okkur. Þar fann ég örverpið mitt  eins og blóma í eggi með tengdafólkinu sínu.  Við skoðuðum rómaðan bústað í Brú og vorum boðin til Guðbjargar  og Stefáns í súpu og brauð.  Það var farið í skoðunarferð um landareignina og Garðar  tengdasonur minn sýndi mér  hvar hann ætlar  að byggja sér  sveitasetur - gröfurnar  verða komnar líklega með haustinu. Frá Eyvindarholti eru myndirnar  af Stefáni, Guðbjörgu, Kristínu dóttur  minni og Garðari tengdasyni mínum.  Ég fer  ekki fram á  meira varðandi ástarlíf dætra minna en að þeim líði vel með kærustunum sínum.  Krissan mín blómstrar með Garðari og fólkinu hans og það er ansi dýrmætt. Þaðan er  líka  mynd af Pétri systursyni mínum og dálitlum  uppeldissyni að skoða útsýni - ekki ósvipað því sem Gunnar  á Hlíðarenda skoðaði forðum þegar  hann ákvað að fara  ekki utan.  Ég myndi ekki gráta það þó Pétur tæki svipaða ákvörðun eftir 15 ár í Noregi.  Nú svo skruppum við í guðdómlegan göngutúr með Margréti og Má meðfram Tungunni.  Kíktum í kaffi til Steina frænda og Ingu á Húsafelli og fórum svo á  Mr. Skallagrímsson í Borgarnesi.  Gaman, gaman og svo aftur í Tungu til Margrétar og  Más þar sem við gistum í nótt.  Að síðustu myndir af þeim Bergþóri og Snorra systursonum mínum.IMG_1194IMG_1191IMG_1215IMG_1217IMG_1235IMG_1234IMG_1232IMG_1231

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já já það er ágætt að fregna af fjölskyldumeðlimum systur minnar svo maður hafi nú eitthvað að tala um í næstu fermingarveislu!

Edda Agnarsdóttir, 23.3.2008 kl. 16:44

2 Smámynd: Álfhóll

Bíddu, bíddu Edda mín hvaða tengingu er ég ekki alveg með á hreinu?

Álfhóll, 23.3.2008 kl. 16:47

3 Smámynd: Álfhóll

Jú, ég man það núna.   Annað hvort föður eða móðurbróðir Garðars er giftur systur þinni var það  ekki einhvern veginn þannig?

Álfhóll, 23.3.2008 kl. 16:49

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jú jú pabbi Garðars og mágur minn eru bræður.

Edda Agnarsdóttir, 23.3.2008 kl. 17:23

5 identicon

Vá hvað við erum miklir lúðar, ég og Garðar! Og við sem ætluðum að vera svo kúl í nýju úlpunum. Sumt felur fólk greinilega ekki:-)

Kristín T (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 23:06

6 Smámynd: Háaleitisbrautin

Við í Drápuhlíðinni erum svo spennt fyrir sveitarsetrinu! Finnst að það ætti að virkja gröfurnar strax í dag!  Brú er yndislegur staður :)

Háaleitisbrautin, 24.3.2008 kl. 09:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband