Góðan daginn!

IMG_0458Annsan mín var að teikna og skrifa og bað mig um að koma með einhver orð svo hún gæti æft sig í stafsetningu.  Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því hvað stelpurófan mín er ótrúlega klár.  Ef einhver man það ekki, þá  minni ég á að hún er nýorðin 8 ára.  Ég sem ætlaði að koma með verulega  erfið orð, en mér tókst ekki að koma henni á gat.  Og má ég benda á skriftina!  Ég gæti ekki skrifað svona vel þó ég reyndi.

 Ömmur mega alveg segja frá afrekum barnabarnanna sinna og eiga að gera það og hana nú!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgerður Langbróók

Hún er yfirburðar....

Hallgerður Langbróók, 10.10.2007 kl. 15:19

2 identicon

Annsan er og verður náttúrlega bara snilli.

Þvílíkur dugnaður - gott að eiga góða ömmu sem kemur auga á slíkt og leyfir okkur hinum að dáðst að.

kv dia

diana (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 17:19

3 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

...og feilar ekki einu sinni á þremur téum í "þátttakan". Frábært stelpuskott :)

Thelma Ásdísardóttir, 10.10.2007 kl. 18:38

4 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

Ps. allt gekk vel í Finnlandi :)

Thelma Ásdísardóttir, 10.10.2007 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband