Drengurinn minn

IMG_0017IMG_0110IMG_1580Hvernig er það eiginlega, náði enginn brandaranum um stuttermann bolinn?  Þessi drengur á batmanbúning og svo á hann marga stuttermann boli. Á fyrstu myndinni er hann með boga og vildi að ég næði mynd af sér með örina á lofti.  Þó ég gæti dáið ef hann hitti mig! Veit ekki hvernig hann komst með þetta vopn á mynd hjá mér.  Álfhóll er og á að vera vopnlaust heimili, eftir að riflinum hans Tomma var stolið.  Á miðmyndinni er hann með gimsteinahálsmen sem hann bjó til sjálfur og skreytir sig með þegar mikið liggur við.  Á þriðju myndinni er hann bara dásamlegur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann er bara dásamlegur þessi drengur! Ég var löngu búin að fatta og heyra stutterman bolina. Ert þú 2 árum á eftir í þroska drengsins?

Kristín Tómasdóttir (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 21:53

2 identicon

Það er verst að þú átt ekki mynd af honum með tíkó. Krakkarnir á leikskólanum eru löngu hættir að taka eftir því þegar hann mætir með tíkó, enda fer það honum með eindæmum vel.

Sóley Tómasdóttir (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 07:41

3 Smámynd: Árni Birgisson

Varlega Sóley!  Þú sér hvernig komið er fyrir okkur Pétri.

Árni Birgisson, 5.9.2007 kl. 17:13

4 identicon

Ja, það er nú ekkert einfalt að setja í þig tíkó orðið Árni minn...

Sóley Tómasdóttir (IP-tala skráð) 6.9.2007 kl. 14:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband