Ánægjuleg gjöf!

IMG_2632IMG_2631Ég hef í vissum kringumstæðum valkvíða á háu stigi.  Ég á mjög erfitt með að finna gjafir handa fólki.  Veit ekki hvað það er, dettur aldrei neitt sniðugt í hug, eins og mig langar oft að gleðja.

Sumt fólk hefur sansinn fyrir gjöfum og er duglegt að gleðja aðra og gerir það án formlegs tilefnis.  Í gær kom Garðar tengdasonur minn færandi hendi.  Hann kom með þessa tvo fallegu potta fulla af dásamlegum kryddjurtum frá Guðbjörgu mömmu sinni.  Ofboðslega skemmtileg gjöf.  Hjartans þakkir Guðbjörg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband