Fallega Freyja

Freyja og ein bumbumynd 008Freyja er engin smáskepna og hefur gjörbreytt  heimilislífinu á Hóli.  Ţau Tommi og Kristín  eru í hundaskóla međ hana og hafa tilkynnt mér ađ ég geti ekki veriđ međ, ţetta sé bara  fyrir  foringja  hundsins. Ţau Tommi voru farin  út  ađ ganga kl. 7.30 í morgun á laugardagsmorgni og nú er hún í göngutúr međ Begga, Rósu, Týru, Sóleyju systur  og  Kristínu dóttur minni. 

Ég held hún sé bráđskörp og eigi sérlega  auđvelt međ ađ lćra - allt annađ en ađ gelta  og  flađra  og stela öllum ţeim mat sem hún heldur  ađ hún komist upp međ ađ stela.  Um  daginn náđi hún stóru osstykki, hálfu smjörstykki og hálfu normalbrauđi á hálfri mínútu.  Ég var "hund"pirruđ viđ hana, ţar til einhver sagđi mér ađ labrador hundar  éti eins og ţeir geti lent í ađ fá ekki mat í heila viku.  Oftast finnst mér  hún samt yndisleg.


Aftur til fortíđar

Guđrún og TommiŢađ hefur  veriđ einkennandi fyrir  undanfarna mánuđi ađ fólk leitar  í gömul gildi, gamaldags mat, prjónaskap og jafnvel gamaldags viđhorf.  Ég veit ekki hvort ţađ  er tilviljun eđa regression ađ gamlt samferđafólk mitt hefur  hóađ í alls kyns samkomur. 

Annađ kvöld erum  viđ Tommi ađ fara ađ  hitta  starfsfólkiđ úr  Skíđaskólanum úr Kerlingafjöllum.  Viđ erum í undirbúningshópnum og höfum veriđ ađ skipuleggja  og undirbúa í margar vikur.  Í Fjöllin var ég ráđin fyrir 39 árum og var ţar í fjögur  sumur. Ţar  kynntist ég Tommsanum mínum, svo ţetta  var  örlagaríkur  tími.  Gilbert vinur  okkar  kemur sérstaklega frá  Frakklandi til ţess ađ vera međ, Dísa vinkona mín úr Fjöllunum fer međ okkur  líka, en ég hef varla spjallađ viđ hana í áratugi.  Skrýtiđ, spennandi og skemmtilegt.

Í ár verđ ég líka 35 ára stúdent og gömlu bekkjarsysturnar eru farnar  ađ pískra  saman, konur  sem ég hef heldur ekki hitt í áratugi.   Enn önnur tengin viđ fortíđina eru vinirnir  okkar góđu frá  ţví í líffrćđinni fyrir meira  en 30 árum, en ţau hitti ég helst ekki sjaldnar en hálfsmánađarlega.  Finnst ég öll vera ađ yngjast eitthvađ og lifna.......... 


Fimm til sex kynslóđir í beinan kvenlegg!

Á gömlu myndinni eru langamma mín Kristín, amma Sóley og mamma ţegar hún var stelpa ásamt Sigurđi Kára Jakobssyni.  Svo erum viđ nýjustu kynslóđirnar á hinum myndunum, mamma er á ţeim öllumFormćđur mínarIMG_2169IMG_2170IMG_2175

Mér finnst gaman ađ beita mér.....................

Bara ađ rifja upp hvernig slegiđ er inn á  Moggablogginu.   Hef veriđ ađ vinna  heima í  dag í friđi og ró.  Finnst slíkar  stundir ómetanlegar.  Talađi viđ Julie Bindel stórfeminista  á  Guardian um forsćtisráđherruna okkar í morgun, aldrei ađ vita hvernig hún matreiđir  ţađ.  Svo fékk ég tćkifćri til ţess ađ tala viđ ţjóđina í hádegisfréttunum og lýsti hryggđ minni yfir forgangsröđun verkefna í heilbrigđisgeiranum.  Hef ástćđu til  ţess ađ ćtla ađ ráđamenn hafi hlustađ og ćtli ađ bregđast viđ.   Vildi ađ ţađ gengi eftir og Neyđarmóttakan verđi ekki skorin enn frekar niđur.  

Á morgun fć ég tćkifćri til ţess ađ leggja inn hjá félagsráđgjafarnemum og sálfrćđinemum nokkur atriđi um kynbundiđ ofbeldi.  Lífiđ er fullt af tćkifćrum, spurning um ađ koma auga á ţau og nýta ţau vel..............


Hálfsakna ţess ađ blogga ekki

Búin ađ klúđra einhverri stillingu á myndavélinni minni, svo ég nć ekki í myndirnar sem ég tek.   Ef mér tekst ađ laga ţađ, er aldrei ađ vita nema ég haldi áfram skrifum mínum hér.  Fannst ţetta dálítiđ skemmtilegt.  Ćtla ađ sjá til


Gleđileg jól

unađslegustIMG_1502IMG_1905Ágćtu vinir og vandamenn.  Álfhólsfréttir óska lesendum sínum gleđilegra og ánćgjulegra  hátíđa. 

Hér á bć er allt klárt.  Ég bíđ nú eftir gesti mínum sem ég hef eytt međ  ţorláksmessukvöldi međ síđan  ég var  11-12 ára.  Ţegar viđ höfum veriđ uppistandandi og í sama landsfjórđungi höfum viđ hittst - ella hringst á.  Ţessi gestur er Ásta vinkona og ţessi stund er sú hefđ sem ég held fastast í.  Oft eru karlarnir okkar  međ líka og ţađ er  fínt, en ađalatriđiđ er ađ ţetta er  okkar  kvöld.  Ég vona ađ  sem allra  flest okkar  séum farin ađ njóta ađventunnar í  stađ ţess ađ slíta sér  út á  ţrifum, saumum og bakstri.   Síđan ég ákvađ ađ ég ţyrfti ekki  ađ gera neitt, geri ég margt - en bara  af ţví mig langar til  ţess,  af ţví ađ  ég hef ánćgju af ţví og vil gera ţađ.  Hlakka mikiđ til ađfangadagskvölds. Hér verđa allar mínar dćtur, barnabörn og  tengdasynir og rjúpurnar verđa hamflettar í fyrramáliđ.


Ćvintýralegi töskumarkađurinn á Stígamótum í dag og á morgun

Ritstjórn Álfhóls hefur ekki komist á flug um tíma, ţrátt fyrir veikburđa tilraun. Ristjórnin braut eigin ritstjórnarstefnu og fór ađ akitera fyrir ýmsu sem Stígamót standa fyrir. Ţađ verđur nú gert í síđasta sinn í bili. Svo fer undirrituđ ađ huga ađ einkalífinu sínu.

 Ćvintýralegi töskumarkađurinn er í dag og á morgun sunnudag kl. 11-18 hjá Stígamótum v. Hlemmtorg

Ţađ er núna um helgina sem ţú getur gert ótrúlega góđ kaup hjá Stígamótum.   Ţađ er eins konar uppskeruhátíđ góđćrisins hjá okkur um helgina.  Fleiri ţúsund veski og tösku af öllum stćrđum og gerđum eru til sölu hjá okkur.  Bćđi uppbođstöskur, antiktöskur, merkjavörur, handgerđar töskur, gamlar og snjáđar og risaprúttmarkađur í kjallaranum.    Hverri tösku fylgir skjal um ađ kaup töskunar hafi styrkt starfsemi Stígamóta.  Starfskonur Stígamóta eru harđákveđnar í ađ halda úti gćđaţjónustu í kreppunni og ţađ kostar peninga. 
Á uppbođinu má fá töskur gefnar af Björk Guđmundsdóttur, töskuna sem Silvía Nótt var međ á Eurovision, tösku međ óbirtu jólaljóđi Gerđar Kristnýjar, tösku međ ljóđi eftir Björgu okkar Gísladóttur, tösku međ listaverki eftir Körlu, tösku međ bođi um ţrjá magadansa í afmćli ţess sem fćr töskuna, tösku sem fylgir afmćlisterta á afmćli nýja eigandans, vandađa skjalatösku frá Steingrími J, listaverkatöskur eftir Bjargeyju Ingólfsdóttur o.s.frv.  ónotađar Gucci, Prada o.s.frv. 
Ţađ er bara núna um helgina sem tćkifćriđ býđst og viđ erum í ţessu fallega og ţekkta  húsi viđ Hlemmtorg. 

Farin til Köben ađ máta mig sem fátćkling..........

Ţorđi ekki annađ en ađ kaupa 2000 dkr. ţar sem  kortanotkun ku vera  varasöm.  Keypti krónuna  á 25 kr.  meira  en helmingi meira  en síđast ţegar  ég var ţar  fyrir mjög stuttu síđan.   Keypti skíđaúlpu fyrir  danska  vinkonu mína hér sem kostar hér 20.000 kr, en hún  greiđir  fyrir hana 8.000.  Er ađ byrja  ađ  fatta hvađ kreppan ţýđir.  Viđ höfum  veriđ rćnd - eitthvert rosalegasta rán sem ég veit ađ ein ţjóđ hefur  orđiđ fyrir!  Urrrrrrrrrrrrrrrrrrrr

By the way, var  einmitt ađ lita á  mér augabrýrnar og sparađi ţannig 2.900 kr.  og var ađ heyra ađ klippikonan mín sem hefur starfađ á  sömu stofu í 20 ár er búin ađ  fá  uppsagnarbréfiđ. Nú er bara ađ fara í heimaklippingu líka hjá  henni. Og svo erum viđ nokkrar komnar í heimalitunarfélag - ekki ţó teknar til starfa.  Peningana beint til fólks í kreppunni!


Til hamingju hetjur!

verđlaunahafar Já ég veit ţađ ađ ég er ađ brjóta ristjórnarstefnuna mína, en ţađ bara ískrar  ennţá í mér  af gleđi yfir gćrdeginum og ég get ekki annađ en birt stórfréttir úr vinnunni minni á Álfhóli. 

Ég vil lyfta upp í sólina konum sem ađrir fjölmiđlar hafa ekki  fattađ.  Ţćr eru svo margfalt merkilegri  en margir af ţeim  sem sífellt ţreyta mig á opinberu fréttastöđvunum, án ţess ađ mér finnist  ţeir hafa margt eđa mikilvćgt ađ segja.  Ég mćli međ ţví ađ Ísland í dag nú eđa e.t.v. Kastljósiđ taki einn ţátt eđa tvo í ađ rćđa viđ ţćr.  Til hamingju elskulegu systur mínar.  

Margrét Steinarsdóttir Jafnréttisviđurkenning Stígamóta áriđ 2008 Fyrir langt og óeigingjarnt starf í ţágu Stígamóta. Fyrir ađ hafa alla tíđ veriđ bođin og búin til liđsinnis.  Fyrir ađ hafa oft tekiđ ađ sér vandasöm verk eins og lögfrćđilega ráđgjöf, frćđslu, peningagćslu, nefndarstörf og ýmislegt fleira. Ekki ţó síst fyrir fyndni, greind, ţćgilega nćrveru og órjúfanlega tryggđ viđ starfsemina.      

Kolbrún Halldórsdóttir Jafnréttisviđurkenning Stígamóta áriđ 2008 Fyrir ađ hafa flutt mörg mikilvćg ţingmál tengd kynbundnu ofbeldi.  Fyrir ađ hafa ţrautseigju og hugrekki til ţess ađ fylgja ţeim eftir ţrátt fyrir illskiljanlegan mótbyr.  Fyrir ađ hafa veriđ óţreytandi ötul í ađ flytja bođskap og hugmyndafrćđi Stígamóta inn í ţingsal.   Fyrir ađ hafa tekiđ ađ sér ýmis verkefni fyrir Stígamót í baráttunni gegn mansali. Fyrir ađ vera alltaf í liđi međ okkur.    

Katrín Anna Guđmundsdóttir Jafnréttisviđurkenning Stígamóta áriđ 2008 Fyrir ađ vera óţreytandi talskona feminisma á Íslandi. Fyrir ótal mikilvćga pistla um málefni kynjanna. Fyrir ţekkingu, visku og hugrekki.  Fyrir ađ ganga á undan og teygja mörk hins leyfilega í baráttunni fyrir réttlátara ţjóđfélagi og auka ţannig rými okkar hinna.   

Matthildur Helgadóttir Jafnréttisviđurkenning Stígamóta áriđ 2008 Fyrir  ađ hafa fengiđ snilldarhugmynd vestur á Ísafirđi og hrint henni í framkvćmd međ hjálp góđs fólks.   Ađgerđin “Óbeisluđ fegurđ” hefur vakiđ verđskuldađa athygli víđa um heim og Stígamótakonur eru stoltar af skemmtilegu samstarfi viđ kvenskörunginn í alţjóđasamhengi.  Fyrir ađ leggja ţung lóđ á vogarskálarnar til ţess ađ sýna fram á afkáraleika ţröngra stađalímynda kynjanna.  Fyrir ađ hafa nýtt fyndni og frumlega hugsun sem eru beitt verkfćri í baráttunni fyrir réttlátara samfélagi og vera ţannig hvatning fyrir okkur öll.    

Ţorgerđur Einarsdóttir Jafnréttisviđurkenning Stígamóta áriđ 2008 Fyrir ađ gegna ómetanlegu uppeldishlutverki fyrir frćđifólk framtíđarinnar.  Fyrir einstaka ţekkingu og fćrni í ađ beita hinu mikilvćga verkfćri kynjafrćđi í baráttunni fyrir réttlátu samfélagi.  Fyrir ađ hafa veriđ óţreytandi viđ ađ miđla fćrni sinni til annarra.  Fyrir örlćti, velvilja og hlýju. Fyrir ađ hafa alltaf veitt stuđning og ráđ ţegar á hefur ţurft ađ halda.   


Hittumst í dag

1.  Kl. 12.10 fyrir utan Norska sendiráđiđ viđ Fjólugötu međ fána og í norskum peysum og međ kampavín og gleđjumst yfir vitibornu frćndfólki okkar í Noregi sem hefur bannađ kaup á konum

2. Löbbum svo yfir í Iđnó kl. 13 og hlustum á vísar og klókar konur frá Evrópu segja frá ţví nýjasta í baráttunni gegn kynferđisofbeldi

3. Tökum ţátt í ađ hylla fimm verđuga viđurkenningarhafa jafnréttisverđlauna Stígamóta sem líka fer fram  í Iđnó kl. 15 og hlustum á undurfallegan söng Önnu Sigríđi Helgadóttur. 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband